23.11.2026
Ágæti félagsmaður
Á árinu 2026 hefur félagið unnið að ýmsum verkefnum, stórum sem smáum. Haldið var málþing á Barnaspítala Hringsins og þar flutti Michael Clausen barnalæknir erindi um fæðuofnæmi, veittur var styrkur til Lindar – félags um Ónæmisgalla, heimasíða AO var kynnt sem og viðbragðsáætlun um fæðuofnæmi og notkun á Epipen.
Námskeið fyrir börn og ungmenni með fæðuofnæmi var haldið á haustmánuðum auk þess sem skrifstofan þjónustaði félagsmenn með ýmiss erindi.
03.09.2026
Málþing í upphafi nýs skólaárs fyrir foreldra barna með fæðuofnæmi, kennara og starfsfólk skóla og leikskóla og aðra áhugasama.
21.08.2026
Kæru félagsmenn
Á morgun er Reykjavíkurmaraþon Íslandsbanka og við hjá Astma- og ofnæmisfélagi Íslands erum ótrúlega þakklát fyrir okkar frábæra fólk sem ætlar að hlaupa og safna áheitum fyrir félagið.
11.08.2026
Fyrir valinu urðu AllergyID app og verkefni Lindar, félags um meðfædda ónæmisgalla en Lind er systurfélag AO og eiga félögin og baráttumál þeirra margt sameiginlegt.
29.06.2026
Skrifstofa félagsins verður lokuð frá 1. júlí til mánudagsins 10. ágúst.
Þú getur sent okkur tölvupóst á ao@ao.is og erindum verður svarað eins fljótt og auðið er eftir 10. ágúst.
Ef erindið þolir ekki bið, vinsamlegast hafðu samband við formann AO, Fríðu Rún Þórðardóttur:
📧 frida@heilsutorg.is
📞 898 8798
🌼 Við óskum öllum gleðilegs sumars! 🌼
18.05.2026
Ágæti félagsmaður
Astma- og ofnæmisfélag Íslands, eins og mörg önnur félög, er þátttakandi í áheitasöfnun Reykjavíkurmaraþons Íslandsbanka sem kallast Hlaupastyrkur.
05.05.2026
Nú er hafin aþjóðleg vitundarvakning um meðfædda ónæmisgalla. Stórstígar framfarir í greiningu og meðferð kalla á auknar áherslur snemmgreiningar.