Um okkur

Astma- og ofnæmisfélagið (AO) var stofnað árið 1974. Það berst fyrir hagsmunum fólks með astma og ofnæmi. Félagið talar máli fólks með astma og ofnæmi við yfirvöld heilbrigðismála, loftgæða- og umhverfismála, kennslumála og aðra áhrifahópa í þjóðfélaginu. Einnig til Evrópusambandsins í gegnum Evrópsku sjúklingasamtökin (EFA). Félagið er fjölmiðlum ráðgefandi um ofangreind málefni og tekur þátt í umræðum líðandi stundar í fjölmiðlum og smærri nefndum og hagsmunahópum.

Nafninu var breytt í Astma- og ofnæmisfélag Íslands í byrjun nýrrar alda og er félagið nú sem fyrr deild í Samtökum íslenskra berkla- og brjóstholssjúklinga (SÍBS) www.sibs.is og aðili að Öryrkjabandalagi Íslands (ÖBÍ) www.obi.is. AO er aðili að norrænu samstarfi og einnig Evrópsku sjúklingasamtökunum um astma, ofnæmi og lungnasjúkdóma, European Federation of Allergy and Airways Diseases (EFA) www.efanet.org

Astma- og ofnæmisfélag Íslands leggur áherslu á fræðslu og þjónustu við félagsmenn sína. Það heldur fræðslufundi og námskeið, tekur þátt í heilsutengdum viðburðum og gefur út fréttablöð og bæklinga.

Skrifstofa félagsins er að Borgartún 28a, 105 Rvk (í húsi SÍBS). Starfsmaður félagsins sinnir erindum þar einn dag í viku á mánudögum kl. 9-15. Tölvupóstur félagsins er vaktaður oftar.

Styrktarsjóður félagsins styrkir verkefni, rannsóknir og starfsþjálfun heilbrigðisstarfsfólks á sviði astma og ofnæmis og hefur gert svo um árabil.

Félagsgjald fyrir árið 2023 er kr 3.000-. Athugið að hálft gjald er greitt fyrir börn, ellilífeyrisþega og öryrkja.

Átt þú samleið með þeim sem berjast fyrir hagsmunum fólks með astma og ofnæmi? Ef svo er skráðu þig þá í félagið hér!