Vertu með og hleyptu fyrir AO í Reykjavíkurmaraþoninu 💙og eigðu möguleika á Brooks hlaupaskóm

Lesa má um verkefnið inni á https://www.rmi.is/godgerdamal og https://www.rmi.is/hlaupastyrkur en þar má einnig skrá sig í áheitasöfnunina um leið og fólk skráir sig í hlaupið.
Einnig má heita á hlaupara í gegnum Hlaupastyrks síðuna sem og fylgjast með hvernig áheitasöfnun gengur.
 
Í gegnum árin hafa félagsmenn og aðrir velunnarar hlaupið fyrir félagið og hafa safnast mikilvægar fjárhæðir sem stutt hafa við starfið á mismunandi hátt.
Síðasta ár var safnað fyrir framhaldsnámskeiði fyrir börn og ungmenni með fæðuofnæmi sem haldið verður á næstunni.
 
Í ár hyggjumst við efna til happdrættis meðal þeirra sem hlaupa fyrir AO.
Allir sem hlaupa fyrir AO „fara í pott“ og verða 2 heppnir áheitasafnarar dregnir út 31. júlí og eiga þess kost að fá Brooks hlaupaskó að gjöf.
 
Við hjá AO hlökkum til að sjá nöfnin ykkar undir AO logoinu
https://www.rmi.is/hlaupastyrkur/godgerdamal/534-astma-og-ofnaemisfelag-islands

 

en einnig er nauðsynlegt að senda okkur tölvupóst á ao@ao.is til að við getum haft samband í tengslum við happdrættið.

 

Hlökkum til að hlaupa með ykkur í anda AO 🏃‍♀️💙🏃