Fréttabréf AO til félagsmanna – nóvember 2026
23.11.2026
Ágæti félagsmaður
Á árinu 2026 hefur félagið unnið að ýmsum verkefnum, stórum sem smáum. Haldið var málþing á Barnaspítala Hringsins og þar flutti Michael Clausen barnalæknir erindi um fæðuofnæmi, veittur var styrkur til Lindar – félags um Ónæmisgalla, heimasíða AO var kynnt sem og viðbragðsáætlun um fæðuofnæmi og notkun á Epipen.
Námskeið fyrir börn og ungmenni með fæðuofnæmi var haldið á haustmánuðum auk þess sem skrifstofan þjónustaði félagsmenn með ýmiss erindi.