Lyfjaofnæmi

Lyfjaofnæmi er ónæmissvörun líkamans við lyfi sem venjulega ætti ekki að valda skaða. Þegar slíkt ofnæmi kemur upp bregst ónæmiskerfið ragnlega við lyfinu. Þetta getur valdið fjölbreyttum einkennum, allt frá vægum húðviðbrögðum til alvarlegs losts. Mikilvægt er að greina á milli ofnæmis og annarra aukaverkana, því aðeins lítill hluti lyfjaviðbragða eru raunverulegt ofnæmi.

Lyfjaofnæmi getur komið fram við fyrstu gjöf lyfs eða eftir endurtekna notkun. Algengustu lyfin sem tengjast slíkum viðbrögðum eru sýklalyf, bólgueyðandi lyf og ákveðin krabbameinslyf.

Rétt greining og vönduð skráning í sjúkraskrá eru lykilatriði, bæði til að koma í veg fyrir hættu og til að tryggja örugga lyfjameðferð í framtíðinni.

Einkenni

  • Útbrot, roði, kláði eða bólga í húð
  • Bólga í andliti, vörum eða tungu
  • Mæði, öndunarerfiðleikar eða þrýstingstilfinning í brjósti
  • Svimi, hraður hjartsláttur eða blóðþrýstingsfall.

Í alvarlegustu tilvikum kemur fram bráðaofnæmi (anaphylaxis), sem er lífshættulegt ástand.


Greining

  • Læknir metur einkenni, tímasetningu og tengsl við tiltekið lyf
  • Ofnæmispróf eða örvunapróf geta hjálpað við greiningu

Meðferð

  • Meðferð felst í því að hætta tafarlaust lyfinu sem grunur leikur á og veita stuðningsmeðferð
  • Við vægum einkennum eru notuð ofnæmislyf eða barksterar
  • Við alvarlegum viðbrögðum er adrenalín fyrsta val
  • Í undantekningartilvikum má framkvæma svokallaða afnæmingu (desensitization) undir nákvæmu eftirliti sérfræðinga

 

Góð ráð

Láttu alltaf lækni og lyfjafræðing vita ef þú hefur fengið ofnæmi fyrir lyfi áður. Skráðu ofnæmi í sjúkraskrá og notaðu lyfjamiða ef þörf krefur. Taktu aðeins lyf samkvæmt leiðbeiningum og forðastu sjálfsmeðhöndlun og leitaðu tafarlaust læknisaðstoðar ef þú færð einkenni sem benda til ofnæmis eftir lyfjatöku.