Fréttabréf AO til félagsmanna – nóvember 2026

Hér fyrir neðan má finna stutta samantekt á þessum verkefnum og hvar má finna ýmislegt efni til upplýsingar og stuðnings.

 

Félagið hefur útbúið ýmisskonar fræðsluefni sem finna má á vefnum www.ao.is

Hér eru gagnleg dæmi 

Einnig höfum við nýlega yfirfarið efni sem kemur að góðum notum í tilfellum fæðuofnæmis, bæði til að skrá niður mikilvæga þætti er snúa að hverjum nemanda en einnig gátlista til að nota ef að eitthvað kemur upp á og barn fær ofnæmisvald í mat í skólanum eða leikskólanum. Við köllum þetta viðbragðsáætlun og efnið má finna hér en um er að ræða leiðbeiningar og tvö eyðublöð.

Fræðslumyndbönd:

Félagið hefur í samvinnu við ofnæmislækna, hjúkrunarfræðing, næringarfræðing og styrktarfélag um bráða fæðuofnæmi framleitt hágæða myndbönd um fæðuofnæmi. Myndböndin voru unnin af SKOT production og má finna á Sarpnum hjá RUV en einnig inni á vef félagsins. Öllum er heimilt að nota þessi myndbönd í kennslu og fræðslu og væri gaman að fá endurgjöf á myndböndin og notkun þeirra.

 

 

 

Nánari fræðsla:

AO hefur góðar tengingar við Iðuna fræðslusetur www.idan.is er snýr að faglegri fræðslu um fæðuofnæmi og má hafa samband við Stein Óskar Sigurðsson með netpósti steinn@idan.is til að fá frekari upplýsingar.

 

AllergyID

Við viljum svo minna á AllergyID sem er mjög gagnleg leið til að miðla upplýsingum um fæðuofnæmi fólks, hvort sem um er að ræða á ferðalögum erlendis eða í tengslum við skólastarf https://allergyid.app/

 

Stuðningur og fræðsla

AO styður við hvern þann sem þarfnast aðstoðar og fræðslu um fæðuofnæmi og höfum við komið í skóla og leikskóla, gefið ráð í síma og með fjarfundi, allt eftir því hvað hentar hverjum og einum. Ef slíkrar þjónustu er þörf þá er velkomið að senda póst á ao@ao.is með upplýsingum um málavöxtu og við höfum samband til baka.

 

Félagsgjöld

Að lokum þá minnum við á félagsgjöldin en greiðsluseðlar eru komnir í heimabanka allra félagsmanna og vonum við að félagsmenn bregðist vel við.

 

Með kærri kveðju

Astma- og ofnæmisfélag Íslands