Latexofnæmi á Íslandi

Af 32 einstaklingum sem hafa greinst með latexofnæmi á Vífilsstöðum, þegar þetta er ritað og upplýsingar eru handbærar um, voru 84% konur. Meðalaldur þessa fólk var 30 ár og 72% voru greindir með annað bráðaofnæmi.

Langalgengustu einkennin voru frá húð, snertikláði, ofsakláði og ofsabjúgur. Þar næst komu einkenni frá öndunarfærum, en 6% höfðu sögu um bráðalost. Ekki var prófað kerfisbundið fyrir grænmeti og ávöxtum hjá þessu fólki en krosssvörun virðist langalgengust við kiwi og banana.

Algengusta ástæða þess að prófað var fyrir latex voru einkenni af latexhönskum og saga um margar skurðaðgerðir.

Latexofnæmi: Aldur, kyn og ofnæmissaga

______________________________________

Aldur: Meðalaldur 30 ár
  Aldursbil 5 - 55 ár
     
Kyn: Menn 16 %
  Konur 84 %
     
Með annað ofnæmi:   72 %

______________________________________

Latexofnæmi: Aldur við greiningu

______________________________

Aldur %
   
0 - 9 9,4
10 - 19 9,4
20 - 29 31,3
30 - 39 25,0
40 - 49 18,8
50 - 59 6,3

_____________________________