Hér má finna uppskriftabók án egg.
Kristín Ýr Pálmardóttir er móðir barns með eggjaofnæmi og höfundur bak við bókina.

Eggjalausar uppskriftir
Hörfræja egg
- 180 g hörfræ
- 1 líter vatn
Setjið hörfræ og vatn saman í pott og látið suðuna koma upp.
Látið sjóða við vægan hita í um 5 mínútur og hrært reglulega í á meðan svo hörfræin festist síður við botninn á pottinum.
Hellið soðnu hörfræjunum gegnum sigti og kælið vökvann sem er slímkenndur.
Notið í staðinn fyrir egg í hlutföllunum ½ dl af kældu soði í staðinn fyrir 1 heilt egg.
Tilvalið er að nota soðnu hörfræin saman við grauta og brauð og jafnvel annan bakstur en hörfræ eru bæði góð fyrir meltinguna auk þess að innihalda hollar fitusýrur til að mynda Omega-3
Gulrótarkaka
EGGJALAUS UPPSKRIFT
Ath. Ekki fyrir fólk með mjólkuofnæmi.
- 5 dl. Rifnar gulrætur
- 1 sítróna
- 3 dl. Heilhveiti
- 1,5 dl. Púðursykur
- 3 tsk. lyftiduft
- 1 tsk. kanill
- 0,5 tsk. negull
- 1 dl. Rúsínur (má sleppa)
- 3 mtsk matarolía
- 1,5 dl. Léttmjólk, undanrenna eða sojamjólk
Rífið gulræturnar. Þvoið sítrúna í heitu vatni og rífið sítrónuhýðið. Setjið hveilhveiti, lyftiduft, púðursykur, kanil, negul og rúsínur í skál og blandið saman við gulrætur og sítrónuhíði. Blanda vökva og matarolíu útí. Deigið sett í ca 1,5 l. smurt form. Bakað á neðstu rim við 175 gráður í ca. 30 mínútur.
Ostakrem á gulrótarköku
- 400 gr. Rjómaostur
- 1 dós sýrður rjómi 18%
- 1 bolli flórsykur
- 1 tsk. vanillusykur
Hrært í hrærisvél þar til það er létt og ljóst og án kekkja.
Cheerios-kökur
EGGJALAUS UPPSKRIFT
- 3 matsk. Síróp
- 100 gr. Smjörlíki
- 100 gr. Suðusúkkulaði (Konsum)
- Cheerios
Smjörlíki og súkkulaði brætt saman í potti ogtekið af hellunni. Sírópi hrært saman við og að lokum er cheerios að vild. Sett í í muffins form og látið kólna. Gott að setja inn í ísskáp.
Kornflex-kökur
EGGJALAUS UPPSKRIFT
- 100 gr. Suðusúkkulaði (Konsum)
- 2 msk. Smjörlíki
- 6 msk. Síróp
- 100 gr. Kornfleks
Bræðið súkkulaði og smjörlíki í vatnsbaði. Hrærið blöndunni saman við kornfleksið og sírópið í stórri skál. Myndið litlar kökur með skeið á smjörpappír eða setjið í muffins form. Kælið í ísskáp.
Spesíur smákökur (eggjalausar)
EGGJALAUS UPPSKRIFT
- 400 gr. smjör
- 500 gr. hveiti
- 150 gr. flórsykur
- 2 msk. rjómi
Blandið öllu saman. Deigið rúllað í lengjur og velt upp úr perlusykri. Geymist í ísskáp yfir nótt. Skerið sneiðar og bakið. Bakað við 190°C í 10 mín.
Kleinur með eggjalíki
EGGJALAUS UPPSKRIFT
- 1 kg hveiti
- 250 g sykur
- 3 tsk lyftiduft
- 12-14 tsk eggjalíki
- 150 g smjörliki
- ½ tsk matarsódi
- 5 dl mjólk og súrmjólk
- 3 tsk kardimommudropar
- 1 tsk vanilludropar
Aðferð
Hnoðið allt vel saman. Fletjið út, mótið kleinur og snúið við. Steikið í heitri plöntufeiti.