Á dögunum veitti Styrktarsjóður AO styrki vegna umsókna í sjóðinn.

AllergyID


AllergyID er nýtt app og einstakt á heimsvísu. Það er þróað af Bjarna Þór Ævarssyni og
er sér íslensk uppfinning, fullþróuð og þegar komin í notkun víðs vegar um heiminn
bæði í App Store og Google Play. Appið hefur verið kynnt fyrir samstarfshópi EFA um
fæðuofnæmi og fékk það þar mjög góðar viðtökur og hrós fyrir þetta lofsverða framtak.
AllergyID er farsímaforrit sem gerir einstaklingum með fæðuofnæmi kleift að búa til
persónulegt ofnæmisupplýsingakort á 35 tungumálum — þ.m.t. íslensku, ensku, þýsku,
japönsku og arabísku.


Virkni er með þeim hætti að notandinn fyllir ofnæmiskortið sitt út einu sinni, eftir það er
hægt að sýna kortið á veitingastöðum, hótelum, sjúkrahúsum, innan skólakerfis eða
vinnustaðar eða á ferðalögum. AllergyID heldur utan um persónulegar upplýsingar á
öruggan máta og persónuverndarsjónarmið eru í heiðri höfð.


Í tilfellum þar sem að ofnæmisvaldur bætist við eða hættir er einfalt að bæta við eða
taka út þannig að kortið veitir alltaf nýjustu upplýsingar. Þetta er mikilvægt þar sem
samskiptavandi er ein algengasta ástæða alvarlegra ofnæmisviðbragða utan heimilis.
Ofnæmiskort á móðurmáli viðtakandans — á japönsku, arabísku eða þýsku — getur
verið munurinn á öryggi og lífshættulegri mistúlkun í ýmiss konar aðstæðum.


Fólk með fæðuofnæmi stendur oft frammi fyrir alvarlegum og oft ósýnilegum hættum
þegar það ferðast, borðar úti eða er í óþekktum aðstæðum. AllergyID dregur úr þessari
hættu með einfaldri og aðgengilegri tækni — gjaldfrjálst í grunnform og hentar öllum
aldurshópum. Eina sem þú þarft að hafa er farsími.


AO óskar Bjarna Þór til hamingju með AllergyID og styrkinn.

 

 

 

 

Verkefni Lindar eru fjölmörg og snúa að því að auka upplýsingaflæði um meðfædda
ónæmisgalla, stuðla að fræðslu og veita fjölskyldum þeirra sem eiga við

 

Lind – félag um meðfædda ónæmisgalla var stofnað 2002 með það að markmiði að
auka almennt upplýsingaflæði um ónæmisgalla, stuðla að fræðslu og veita fjölskyldum
þeirra sem stríða við þennan meðfædda sjúkdóm stuðning og ráðgjöf. Í samtökunum er
fólk með meðfædda ónæmisgalla (en: immunodeficiency), fjölskyldur þeirra,
heilbrigðisstarfsfólk og aðrir sem áhuga hafa á málefninu. AO styrkti félagið fyrir
nokkrum árum síðan við kaup á mælibúnað sem notaður er við nýburaskimanir á
Landspítala.


Lind er hluti af alþjóðafélaginu IPOPI www.ipopi.org og tekur þátt í sameiginlegum
viðburðum þess meðal annars alþjóðlegri vitundarvakningarviku í apríl á hverju ár.
Þema ársins í ár er fræðsla til almennings um ónæmisgalla þar sem sjúkdómurinn er
mjög vangreindur og áríðandi að sjúklingar fái greiningu sem allra fyrst svo að rétt
meðferð geti hafist en greining er á höndum lækna á Landspítala. Félagið hefur í þessu
samhengi þýtt og gefið út „10 Warning signs of immunodeficiency” frá Jeffrey Model
Foundation og hafið dreifingu á þessum upplýsingum í gegnum netið en einnig gegnum
þar til bæra aðila, lækna og apótekin.

Félagið fylgist vel með framgangi rannsókna og meðferða á ónæmisgöllum meðal
annars með norrænu- og alþjóða samstarfi og þátttöku í ráðstefnum og málþingum
erlendis auk þess að vinna mjög náið með læknum Ónæmisfræðideildar á Landspítala.
Fjölskyldudagur Lindar er árlegur sumar viðburður sem hefur það markmið að tengja
saman fjölskyldur og fólk sem stríða á einn eða annan hátt við ónæmisgalla og
afleiðiingar þess. Mikilvægur gæða tími fyrir spjall og samkennd.
https://www.lindisland.net/

AO óskar Lind til hamingju með styrkinn og vonar að hann nýtist vel í komandi verkefnum