Ágæti félagsmaður Astma- og ofnæmisfélags Íslands
Við höfum þegar fengið góð viðbrögð við könnuninni, en við viljum gjarnan heyra frá enn fleiri félagsmönnum. Hver einasta skoðun skiptir máli og hjálpar okkur að þróa starf félagsins þannig að það endurspegli sem best þarfir og væntingar ykkar. Ef þú hefur ekki enn svarað, hvetjum við þig eindregið til að gefa þér 5–10 mínútur og taka þátt.
Stjórn AO hefur áhuga á að heyra frá félagsmönnum um hvernig starf félagsins lítur við þeim. Aðeins með því að eiga samskipti við félagsmenn og heyra þeirra skoðun getum við mætt betur þörfum fólks með astma og ofnæmi.
Markmiðasetning stjórnar félags eins og AO hlýtur einnig að endurspeglast af þörfum félagsmanna og því leitum við til ykkar um að svara þessari könnun sem er nafnlaus og órekjanleg að öllu leyti.
Það tekur um það bil 5–10 mínútur að svara könnuninni.
Smellið hér til að svara könnuninni: https://tally.so/r/lbKqrW
Við þökkum ykkur fyrirfram fyrir þátttökuna og minnum á að ykkur er ávallt velkomið að hafa samband við félagið til að fá upplýsingar, ráðgjöf eða aðstoð.
Með því að taka þátt hefur þú raunveruleg áhrif á framtíð starfs Astma- og ofnæmisfélags Íslands. Við vonum innilega að þú sjáir þér fært að leggja þitt af mörkum.
Með bestu kveðju,
Stjórn Astma- og ofnæmisfélags Íslands