Fólk með ofnæmi og astma getur átt eins góð frí og allir aðrir, bæði hér á landi og erlendis. En það getur kallað á betri undirbúning séu þessir sjúkdómar til staðar. Sýna verður örlítið hyggjuvit við val á ákvörðunarstað. Þú veist best hvað þú þolir og hvað er ekki heppilegt.
Astmaveikt fólk með gróðurofnæmi ætti að forðast að vera á ferðinni á stöðum þegar ofnæmisvaldar eru í hámarki í andrúmsloftinu, fólk með ofnæmi fyrir dýrum ætti að tryggja að gæludýr séu ekki leyfð á hótelum sem valin eru o.s.frv. Fæðuofnæmi getur hugsanlega ráðið einhverju um val á stað sem ferðast er til.
Nokkur góð ráð sem gott er að hafa í huga:
- Mundu að hafa ávallt nægar birgðir lyfja með þér í fríið.
- Stundum getur verið ráðlegt að ráðfæra sig við lækni um hvort breyta þurfi lyfjameðferðinni eitthvað áður en haldið er af stað.
- Hafðu með þér lista yfir lyfin þín, á tungumáli viðkomandi lands eða á ensku.
- Læknar og lyfjafræðingar í útlöndum ættu að geta hjálpað þér ef þeir vita nákvæmlega hvaða lyf þú þarft.
- Astmasjúklingar, sem þurfa að nota innúðavélar, ættu að gæta þess að þær séu gerðar fyrir þann rafstraum sem notaður er í því landi sem ferðast er til.
Þegar komið er á áfangastað er gott að gera sér strax grein fyrir hvar hægt sé að ná í lækni. Skrifaðu hjá þér nafn læknis og símanúmer og láttu fararstjóra og/eða ferðafélaga vita um sjúkdómsástand þitt, ef um hópferð er að ræða.
Kynntu þér neyðarnúmer viðkomandi lands ef þess kynni að verða þörf.