Hvaða hlutir geta innihaldað latex?

Hér er listi sem er ekki tæmandi. Munið að lesa á vörur hvort þær innihaldi latex.

Persónulegir hlutir:

  • Gúmmíhanskar (ath. til eru hanskar án latex)
  • Föt sem teygjast (með elastíni), til dæmis sokkar
  • Teygjur í fötum (athugið sérstakleg sundfötin, því teygjan blotnar)
  • Hárteygjur
  • Skósólar og skór
  • Stígvél
  • Regnföt
  • Plástur
  • Þvagleggir
  • Smokkar
  • Hettan
  • Teygja í bréfbleyum (barnableyum)
  • Snuð
  • Túttur
  • Gúmmíleikföng fyrir börn
  • Sundhettur
  • Sundgleraugu
  • Hitapokar
  • Og fleira

Umhverfið:

  • Gúmmítré
  • Afmælisblöðrur
  • Hjólbarðar
  • Dekk, til dæmis hjóladekk, reiðhjól, bíldekk
  • Rafmagnsnúrur
  • Leikföng úr gúmmí, til dæmis brennóbolti
  • Rúmdýnur

Á spítalanum:

  • Sprautur og nálar sem notaðar eru fyrir einstakling með latexofnæmi eiga að vera latexfríar
  • Athugið allar umbúðir, til dæmis plástur (ekki nota Cobanbindi, Micropore og Moleskin)
  • Starfsfólk mega nota vinylhanska
  • Athugið við blóðprufu að nota stasaslöngu sem er latexfrí
  • Athugið að nota blóðþrýstingsmælir án latex
  • Einstaklingur sem þarf að fara í aðgerð á helst að vera fyrstur í aðgerð
  • Sjúkraskyrslur og rúm einstaklingsins á að vera merkt LATEXOFNÆMI
  • Matarkort á að vera merkt LATEX-ofnæmi (má ekki borða avókadó, banana, kastaníur, kiwi ásamt fleiru)

Latexvörur án nattúrulegs latex:

  • Flestar málningarvörur sem sagðar eru innihalda latex valda ekki ofnæmisviðbrögðum þar sem þær eru ekki unnar úr náttúrulegu latex