HVERNIG Á AÐ MATREIÐA OFNÆMISFÆÐI Á ÖRUGGAN HÁTT?
1. og 7. nóvember Kl. 16:30-19:30
Astma- og ofnæmisfélag Íslands stendur fyrir námskeiði um eldun ofnæmisfæðis fyrir foreldra, forráðamenn og aðstandendur barna og ungmenna með fæðuofnæmi. Námskeiðið fer fram í Menntaskólanum í Kópavogi og verður haldið tvö síðdegi á virkum degi. Námskeiðsgjaldi verður haldið í lágmarki eða aðeins 5.000 kr.
Markmiðin
Megin markmiðið með námskeiðinu er að bjóða upp á faglega fræðslu
um fæðuofnæmi, alvarleika þess, ýmsar öryggisráðstafanir í daglegu lífi og hvernig tryggja megi góða og holla næringu. Það getur verið flókið að tryggja öruggt fæði og umhverfi fyrir einstakling með fæðuofnæmi. Ljóst er að næringarefni geta orðið af skornum skammti þegar fæðuofnæmi er til staðar og felst fræðslan m.a. í því að fara yfir hvaða fæðutegundir geta komið í staðinn fyrir mjöl, korn, mjólk egg, fisk, hnetur o.fl. til að fullnægja orku- og næringarlegum þörfum og skapa fjölbreytni í fæðu barna og ungmenna. Einnig verður farið yfir hugmyndir að afmælisveitingum og nesti.
Markhópur
Foreldrar, forráðamenn og aðstandendur, jafnvel eldri systkyni barna og ungmenna með fæðuofnæmi. Námskeiðið getur einnig gagnast ungmennum með fæðuofnæmi.
Bóklegt 3 klst með stuttu hléi.
*Tryggjum næga orku og góða næringu með hollum, góðum og öruggum mat Fríða Rún
Kaffihlé
*Öryggi og ábyrgð gagnvart börnum og ungmennum með fæðuofnæmi.
Tillögur að mat án ofnæmisvalda. Umræður Selma
Verklegt: 3 - 3 ½ klst
*Eldum góðan og næringarríkan mat fyrir alla, einnig börn og ungmenni Margrét
með fæðuofnæmi og -óþol. Umræður og smakk
Kennarar
Selma Árnadóttir, stjórnarmaður í AO og móðir ofnæmisbarns.
Fríða Rún Þórðardóttir, næringarfræðingur og næringarráðgjafi Eldhúsi Landspítala, formaður AO.
Margrét S. Sigbjörnsdóttir, kennari og umsjónaraðili með matartæknanámi við Menntaskólann í Kópavogi.
Annað
Sýndar verða ýmsar sérfæðisvörur auk þess sem matreiðslubókin Kræsingar verður til sölu.
Nánari upplýsingar veitir á ao@ao.is
Skráning, skráningarfrestur og námskeiðsgjald.
Skráning fer fram hér: https://goo.gl/forms/Zyut6Twv6zmHgsQO2
Skráningarfrestur er til og með 30/10-17.
Greiða þarf 5000 kr. staðfestingargjald við skráningu sem jafnframt er námskeiðsgjaldið og er hráefnisgjald innifalið:
Bankareikningur 0113-05-570194,
Kennitala 5904740109
Senda kvittun á: ao@ao.is
Vinsamlega greiðið aðeins eitt gjald í hverri færslu þannig að hægt sé að sjá fyrir hvern er verið að greiða eða sendið póst á ao@ao.is og tilgreinið fyrir hvern var greitt á.
Fríða Rún Þórðardóttir
Formaður AO
frida@heilsutorg.is
898-8798
Astma- og ofnæmisfélag Íslands Síðumúla 6, 108 Reykjavík Veff.: www.ao.is Netf.: ao@ao.is