Astma- og ofnæmisfélag Íslands vill vekja athygli á því að börn á leikskólaaldri (eldri en 12 mánaða)
með bráðaofnæmi og með epipen/adrenalínpenna vegna þess, eiga rétt á forgangi í leikskólapláss í
Reykjavík.

Rökin fyrir forgangi eru þau að dagforeldrar starfa oft einir og eru gjarnan með fimm mjög ung börn og því óæskilegt ef þeir lenda í aðstæðum þar sem sinna þarf barni með epipen gjöf og mögulega sjúkrabíl í framhaldi.
Á vef Reykjavíkurborgar er eyðublað sem foreldrar þurfa að fylla út og auk þess þarf að afla og senda inn læknisvottorð. Nauðsynlegt að þar komi fram að viðkomandi barn sé með epipen/adrenalín penna.
Eyðublaðið heitir "Umsókn um forgang í leikskóla" og útfyllt eyðublaðið sendist síðan á netfangið: innritun.leikskola@reykjavik.is