Munið að lesa vel á allar vörur sem keyptar eru líka þær sem eru á þessum lista.
Athugið: Matvælafyrirtæki geta breytt innihaldi vörunnar.
Ungbarnamatur
- Brjóstamjólk, þurrmjólk sem heitir Nutramigen eða sojaþurrmjólk
- Korngrautar (ris, hirse, havre, bygg og fl) frá Aurion, fást í Heilsuhúsinu og Fjarðarkaup
- Gerber ungbarnagrautar. Lesa vel á allan annan pakkamat
- Krukkumat þarf að lesa vel á sumt er í lagi t.d epli, perur, ferskjur og fl. en sumt ávaxtabland inniheldur mjólk
- Gott er að sjóða og mauka sjálf ávexti, grænmeti, kartöflur, kjöt, kjúkling, fisk (eftir aldri barnsins) og bæta smá olíu út í. Gott er að frysta í litlum skömmtum
- Þegar farið er að nota venjulegan hafragraut er gott að breyta til og setja smá kanil út í og eplamauk, stundum rúsínur
Matur
- Grænmeti, allt t.d. gulrætur, blómkál, brokkál og fl. (soðið)
- Ávextir og ávaxtasafar allir
- Sojamjólk til drykkjar og í alla matargerð og bakstur
- Sojajógúrt
- Grjónagrautur úr sojamjólk, gott að nota vanillusojamjólk til helminga
- Kartöflumús úr pakka (frá Náttúra og fl. lesa vel)
- Fiskur, allar tegundir
- Kjúklingur
- Kjöt, allar feskar kjöttegundir, hamborgari, gott að búa til hakkbollur
- Káess kjötvinnsla s:5870522-framleiðir kjötfars, bjúgu og fl. úr sojamjólkurpróteini (www.kaess.is). Verður að hringja og panta daginn áður
- Sviðasulta
- Danskar pylsur frá Pölsemesteren og Bratwurst frá SS
- Lambanaggar, Sænskar kjötbollur og sælkerabollur frá Naggar (Norðlenska)
- Kjúklinganaggar og kjúklingabollur frá Móum
- Allt kjötálegg frá Goða(Norðlenska) er í lagi, en lesa þarf vel á allt álegg t.d er mjólkurprótein í flest öllu frá SS
- Kindakæfa, nestis kæfa, beikon kæfa og dönsk lifrarkæfa frá Goða
- Skinka lifrakæfa frá Ali
- Grænmetiskæfur frá Tartax (fást í Heilsuhúsinu, Fjarðarkaup og allavega ein teg. í Hagkaup)
- Kjúklingaálegg frá Holtabúinu
- Pasta eggjalaust t.d frá Barilla
- Eggjalaust majones frá GUNNARS ( ath eggjalaus kokteilsósa inniheldur mjólk )
- Eggjalaust remólaði frá GUNNARS
- Nutana jurtasmjör eða Rapunzel(til bæði sólblóma og soja). Fást í Heilsuhúsinu og Fjarðarkaup
- Smjörlíki, flest allt
- Olíur t.d. olívuolía og ISIO4
- Cherios, Honey nut Cherios, Korn flakes og Cocoa puffs
- Flest öll brauð í lagi. Skoða heimasíðu myllunnar
- Pylsubrauð og hamborgarabrauð frá myllunni
- Flatkökur
- Beyglur
- Rúgbrauð frá ömmubakstri. ( passa sig á öðrum teg. innih. súrmjólk)
- Kringlur í lagi í sumum bakaríum t.d kornið en oft er notað mjólkurduft eða mysuduft t.d í bakaríum myllunnar þ.e í.Hagkaup, Nóatún og Bónus
- Snúðar m/glassúr í bakaríi Fjarðarkaups, Korninu Hjallabrekku Kóp. Kökuhúsið
- Passa þarf að spyrja í bakaríum um snúða oft er notaður mjólkursykur t.d. hjá Bakarameistaranum
- Piparkökur(mildar og ljúffengar í kexpakka frá Frón)
- Hafrakex frá Frón
- Snap Jacks Fruit og Snap Jacks Country
- Hrökkbrauð og bruður
- Carr´s Table Water (vatnskex)
- Tom & Jerry kex frá Göteborgs
- Piparkökur frá Góð kaup (Fæst í Hagkaup og Bónus)
- Nesquik kakómalt
Bakstur
- Góður bæklingur með eggjalausum uppskriftum er til og hægt er að nota sojamjólk eða Rice mjólk í staðinn fyrir mjólkina sem er í uppskriftunum
- Suðusúkkulaði
Nammi
- Konsum suðusúkkulaði
- Rúsínur með konsum suðusúkkulaði frá Nóa-Síríus
- Hlaup/gúmmí
- Lakkrís m/marsipan frá appollo
- Snakk(flest allt nema ostasnakk)
- Saltstangir (ath. mjólk í saltkringlum frá Lorenz)
- Örbylgjupopp (passa sig á popp secret, það inniheldur léttmjólk)
- Rúsínur og döðlur
- Frostpinnar án súkkulaðis t.d. frá kjörís (Leiftur, Stjörnu, Ananas)
- Frá Emmess (Ananas)
- Tímon og Púmba frostpinni frá Nestlé
- SunLolly klakar
- Soja ís (súkkulaði, jarðaberja, vanillu)
- Íssósa (súkkulaði og fl. lesa vel.) frá Emmess og Kjörís
Annað
Í lagi:
McDonald´s hamborgari án osts og franskar er í lagi. Franskarnar eru steiktar sér í olíu þannig að ekkert smit á sér stað.
Þeir sem þurfa að passa upp á smit geta hringt á undan sér á McDonald´s og látið vita þannig að einn starfsmaður sjái um pöntunina með viðeigandi ráðstöfun, ostur er ekki settur á hamborgara á pönnunni heldur þegar maturinn er kominn í öskjuna.
Kjúklinganaggar, Kjúklingaborgarar, Kjúklingar og fiskborgarar innihalda mjólk og/eða egg. Barnabox er frábær lausn í barnaafmæli. Hægt er að hringja í Sigríði s:5517444 á skrifstofutíma ef vantar einhverjar upplýsingar um innihald, einnig er heimasíða md.is.
Athugið
Það er mjólk í kjötfarsi og flestum unnum kjötvörum, en hægt að panta frá Káess í s:5870522.
Allur pakkamatur inniheldur einhver mjólkurduft t.d pakkasósur, best að gera sósur sjálfur úr teningum og þykkja með hveitijafning.
Kentucky Fried chicken notar mjólkurduft í blönduna sem fer utan á kjúklingana.
Munið að lesa vel á allar vörur sem keyptar eru líka þær sem eru á þessum lista.