OFNÆMI

Hvað er ofnæmi? Ofnæmi er ónæmissvar gegn skaðlausum efnum eins og frjókornum, dýrum eða fæðu. Einkenni eru meðal annars hnerri, útbrot og öndunarerfiðleikar eða einkenni frá meltingarfærum ef fæða á í hlut. Meðferð felst í að forðast ofnækisvaldinn, ofnæmislyfjum, forvörnum og afnæmingu.

Ofnæmi er algengt hjá börnum og fullorðnum og með réttri greiningu, forvörnum og lyfjameðferð er hægt að draga verulega úr einkennum og bæta lífsgæði. Leitið til læknis við langvarandi eða alvarleg einkenni.

Einkenni

  • Nefrennsli, nefstífla og hnerri (ofnæmiskvef)
  • Kláði í augum, tárarennsli og rauð augu
  • Húðútbrot eins og ofnæmisexem og bólgur 
  • Andþrengsli, hósti og önghljóð í öndunarvegi (ef astmi tengist ofnæminu)
  • Útbrot, magaverkir, uppköst eða niðurgangur eftir neyslu ofnæmisvalds í fæðu
  • Í alvarlegum tilfellum: Brátt ofnæmiskast (e. anaphylaxis) – getur verið lífshættulegt

Orsakir

  • Ofnæmi stafar af ofnæmissvörun ónæmiskerfisins við efnum sem eru annars skaðlaus
  • Algengir ofnæmisvaldar:
    • Gras, birki og önnur frjókorn
    • Köttur, hundur, hestar og önnur dýr. Mygla og rykmaurar
    • Fæða, til dæmis egg, mjólk, hnetur og sjávarfang
    • Skordýrabit, til dæmis býflugur og geitungar
    • Lyf, til dæmis pensillín eða bólgueyðandi lyf
    • Snertiefni og má nefna málma, ilmvatn eða efni í snyrtivörum

Meðferð

  • Forðast ofnæmisvalda eftir bestu getu.
  • Ofnæmislyf:
    • Andhistamín til að draga úr kláða, hnerri og bólgu
    • Bólgueyðandi nefúðar og augndropar
    • Berkjuvíkkandi og bólgueyðandi lyf ef öndunarfæri verða fyrir áhrifum
  • Ofnæmisónæming:
    • Felur í sér að einstaklingur fær ofnæmisvalda í smáum skömmtum til að byggja upp þol. Bæði til sem sprautur og töflur
    • Adrenalínpenni (Epipen) ef saga er um brátt ofnæmiskast


Hvenær skal leita til læknis?

  • Við viðvarandi ofnæmiseinkenni sem hafa áhrif á lífsgæði eða svefn
  • Ef einkenni versna þrátt fyrir meðferð eða ef þau koma oft aftur
  • Við alvarleg ofnæmisviðbrögð, til dæmis öndunarerfiðleika
  • Ef grunur er um fæðuofnæmi eða ef lyf valda viðbrögðum
  • Fyrir greiningu, prófanir og meðferðaráætlun hjá sérfræðingi (ofnæmis- eða lungnalækni)

 

Tíðni ofnæmis og astma hefur vaxið í hinum vestræna heimi á síðustu áratugum. Ástæðan er sennilega margþætt. Gæludýrum hefur fjölgað og við eyðum meiri tíma innan dyra en áður. Víða eru hús byggð sérstaklega til að spara orku, loftræsting er minni og algengt er að leggja teppi í hólf og gólf. Þetta leiðir til þess að ofnæmisvakar frá dýrum safnast fyrir í miklu magni og það er erfiðara að ná þeim í burtu.

Skoðaðu Ofnæmi fyrir dýrum. Bækling eftir Unni Steinu Björnsdóttur og Davíð Gíslason, lyflæknar og sérfræðingar í ónæmis- og ofnæmissjúkdómum. Aventis: 2002. Bæklinginn má einnig nálgast á skrifstofunni.