Fundargerð Aðalfunda 2026

Aðalfundur Astma- og ofnæmisfélags Íslands vegna 2025

Borgartún 28a, 14. apríl 2026, kl. 17:00-18:30.

Mætt: Fríða Rún Þórðardóttir, Benedikt Hjartarson, Guðrún Erla Þorvarðardóttir, Hermann Arnar Austmar, Tonie Gertin Sörensen, Anna Kristín Jóhannesdóttir, Guðmundur Sigurðsson, Guðlaug María Bjarnadóttir, Súsanna Antonsdóttir, Sigurrós Kristjánsdóttir, Sólveig Skaftadóttir. 

Forföll boðuðu:, Dagný Erna Lárusdóttir, Harpa Rut Hafliðadóttir, Sólrún Melkorka Maggadóttir, Selma Árnadóttir.

  

Dagskrá aðalfundar

1. Formaður setti fundinn.

Formaður bauð fundarmenn velkomna á aðalfund AO vegna 2025. Fundarmenn kynntu sig í stuttu máli. Þá var gengið til dagskrár.

 

2. Kjör fundarstjóra og skipun fundarritara.

Formaður stýrði fundinum og ritaði fundargerð, og var það samþykkt samhljóða. Fundarstjóri þakkaði traustið og gekk til dagskrár. Hann úrskurðaði aðalfundinn löglegan þar sem löglega hafi verið til hans boðað. Fundurinn var auglýstur þann 9. mars á heimasíðu AO og facebook síðu auk þess sem hann var auglýstur í tímariti AO og allir félagar fengu boð um fundinn með tölvupósti. Seinni tilkynning um fundinn var send út á félagsmenn 26.3 og áhugasamir um störf fyrir félagið hvattir til að hafa samband til að fá frekari upplýsingar.

 

3. Fundargerð

Farið var yfir fundargerð síðasta aðalfundar sem var samþykkt samhljóða. Fundargerðir aðalfunda eru nú birtar á heimasíðu AO (www.ao.is / Félagið / Um félagið).

 

4. Skýrsla stjórnar

Formaður flutti skýrslu stjórnar (3 bls) og stiklaði á stóru um starfsemi liðins árs og var hún samþykkt samhljóða. Skýrsla stjórnar eru nú birtar á heimasíðu AO (www.ao.is / um félagið).

 

5. Skýrsla gjaldkera

Formaður fór yfir rekstrarreikning vegna ársins 2025. Á árinu 2025 gekk áfram vel að afla styrkja sem er grundvöllur fyrir því að ýmiss verkefni félagsins komist til framkvæmda og hlutust styrkir frá ÖBÍ og Heilbrigðisráðuneytinu (safnliðir fjárlaga). Rekstur er því í góðu jafnvægi.

Samkvæmt efnahagsreikningi voru tekjur af reglulegri starfsemi kr 7.072.999 kr samanborið við 8 milljónir árið á undan. Skýringin á þessum mismun er í fyrsta lagi að árið 2024 kom til framlag í Minningarsjóð Hallbjörns Kristinssona sem var eingreiðsla upp á 1 milljón króna. Um 150.000 kr minna kom inn vegna útgáfustarfsemi en styrkir voru sambærilegir og árið á undan. 95.000 kr meira innheimtist af félagsgjöldum nú en árið á undan.

Árið 2025 var rekstrarkostnaður samtals 8,5 milljónir samanborið við 7,6 milljónir árið á undan.

Tekjur af innistæðum voru 2.095.682 kr samanborið við 2.555.376 kr árið á undan. Hagnaður nam 2.095.682 samanborið við 2.938.486 kr árið á undan.

Við árslok námu eignir félagsins 53.999.314 kr samanborið við 53.719.592 kr árið á undan. 2023 var upphæðin 50.7 milljónir og 2022 50.3 milljóni.

Eigið fé og skuldir samtals voru við lok árs 53.999.314 kr auk 75.000 kr kröfu á Styrktarsjóð AO, samanborið við 53.719.592 kr

Tekjur af reglulegri starfsemi voru kr. 7.072.999 og tekjur af innstæðum kr. 2.099.306. Hagnaður af rekstri félagsins nam kr. 660.882 samanber 2.938.486 kr árið á undan.

 

6. Skýrslur nefnda og sjóða

Skýrsla um starfsemi Styrktarsjóðsins var flutt af formanni en aðalfundur Styrktarsjóðsins var haldinn sama dag eins og tíðkast hefur.

 

7. Umræður um skýrslur. Ársreikningar bornir upp.

Ársreikningurinn var borinn upp og samþykktur samhljóða sem og skýrsla stjórnar AO.

 

8. Ákvörðun félagsgjalda sbr. 6. gr.

Staða félagsins gagnvart innheimtu félagsgjalda var rædd og lýst ánægja með hversu vel tókst við innheimtu 2025, eða 95.000 kr meira en árið á undan sem þó var gott. Formaður lagði til að félagsgjaldið yrði óbreytt, 3.000 kr fyrir almennan félaga og 1.500 kr fyrir lífeyrisþega og börn 18 ára og yngri. Það var samþykkt.

 

9. Lagabreytingar

Engar formlegar lagabreytingar lágu fyrir þessum fundi en lög félagsins voru samþykkt með áorðnum breytingum sem lagðar voru fram og samþykktar á aðalfundi 2024.

Þær breytingar voru:

4. grein liður b um tilgang félagsins, endurskoðuð, þar sem stendur „Að vinna að því að koma upp lækningamiðstöð með sérhæfðu starfsliði fyrir öndunarfæra- og ofnæmissjúklinga.“

Einnig að endurskoða 6. grein um félagsgjöld, og fella út að „ævifélagar greiða tífalt árgjald“.

 

10. Formannskjör

Fundurinn stakk upp á sitjandi formanni, Fríðu Rún Þórðardóttur, sem áframhaldandi formann AO. Fundurinn tók undir og samþykkti tillöguna samhljóða með lófataki. Fríða Rún þakkaði traustið.




11. Kjör tveggja meðstjórnenda.

Harpa Rut Hafliðadóttir og Guðrún Erla Þorvaldsdóttir voru kjörnar meðstjórnendur til tveggja ára.

Núverandi stjórn er því. Fríða Rún Þórðardóttir formaður, Selma Árnadóttir varaformaður og gjaldkeri, Harpa Rut Hafliðadóttir ritari, Sólrún Melkorka Maggadóttir og Guðrún Erla Þorvarðardóttir.

 

11. Kjör þriggja varamanna

Benedikt Hjartarson, Hermann Arnar Austmar og Anna Kristín Jóhannesdóttir voru kjörin til eins árs.

 

12. Kjör tveggja skoðunarmanna og eins til vara.

Skoðunarmenn eru Sólveig Hildur Björnsdóttir og Ari Víðir Axelsson. Varamaður Súsanna Antonsdóttir.

 

13. Stjórnarkjör Styrktarsjóðs (kt: 650202-3680)

Samkvæmt lögum Styrktarsjóðsins er formaður AO sjálfkjörinn í formannssæti sjóðsins, það embætti helst því óbreytt. Stjórnina skipa nú auk formanns AO, Björn Rúnar Lúðvíksson, Sólrún Melkorka Maggadóttir, Sólveig Skaftadóttir og Tonie Gertin Sörensen.

Varamenn eru Björn Árdal, Hermann Arnar Austmar og Dagný Erna Lárusdóttir

 

14. Aðrar kosningar

Engar aðrar kosningar fóru fram.

 

15. Önnur mál.

Björn Rúnar Lúðvíksson sagði frá því að fyrir fjórum árum var sótt um til World Allergie Association um að fá vottun sem „World Allergie Center of Excellence“ og fékk Ofnæmis- og Ónæmisfræðideild Landspítala þessa vottun og fékkst einnig endurvottun nú nýlega. Mjög fáar stofnanir á norðurlöndum eru með þessa vottun. Björn nefndi að sérnáms nálgunin sem AO vann að með FOÓ og HÍ hafi verið mikilvægur hluti af vottuninni og hversu góð hún var.

Rætt var um Reykjalund og hvernig sú stofnun er að ná að stafa í dag vegna húsakosts, pláss leysis og fjárframlaga.

 

Formaður sleit fundi kl. 18:45

 

Fundargerð ritaði Fríða Rún Þórðardóttir