Skýrsla stjórnar Astma- og ofnæmisfélags Íslands vegna 2025

Starfsemi AO 2025 var með sambærilegu sniði og síðustu árin á undan og sat sama fólk í stjórn félagsins. Tonie, dyggi og reynslumikli starfsmaður félagsins starfaði á sama hátt og áður nema að nú hefur hún smátt og smá styrkt sig á sviði notkunar á gervigreind til að flýta fyrir í sinni vinnu sem er drjúgt því nóg er að gera alla mánudaga.

 

Félagafjöldinn er 834 manns, sem er smávægileg lækkun frá árinu á undan en yndislegir félagar þær Telma Grímsdóttir og Hanna Regína Guttormsdóttir kvöddu okkur á árinu. 11 sögðu sig úr félaginu 2025 samanborið við 20 árið á undan.

 

Rekstur og fjármál:

Fjárhagsleg staða félagsins er sterk og stöðug sem endra nær, enda vel farið með fé og reynt að sækja um þá styrki sem okkur stendur til boða að sækja um með vönduðum umsóknum en rétt verkefnin þurfa að vera til staðar. Þó eru beinir rekstrarstyrkir í boði sem er félaginu mikilvægt. Góð fjárhagsstaða er jákvæður póstur og gefur tilefni til áframhaldandi bjartsýni.

 

Styrkir bárust frá ÖBÍ réttindasamtökum auk styrks af fjárlögum sem skiptir félagið gríðarlega miklu máli og eru þakkar verðir. Styrkirnir eru ekki aðeins mikilvægir fjárhagsins vegna, heldur þess að þeir sýna að félagið og verkefni þess þykja mikilvæg fyrir samfélagið á Íslandi.

 

Endurskoðandi sér um ársreikning AO og Styrktarsjóðs sem og útreikninga á launum og launatengdum gjöldum og útgáfu launaseðla.

 

Stjórnarmál:

Stjórn AO fyrir tímabilið 2024-25 var þannig skipuð. Fríða Rún Þórðardóttir formaður og Selma Árnadóttir varaformaður og gjaldkeri. Harpa Rut Hafliðadóttir ritari, Sólveig Skaftadóttir og Sólrún Mekorka Maggadóttir voru meðstjórnendur. Varamenn Guðrún Erla Þorvarðardóttir, Hermann Arnar Austmar og Sif Hauksdóttir.

 

Selma og Fríða Rún tóku virkan þátt í starfi SÍBS eins og undanfarin ár sem stjórnarmenn. Sif tók sér frí frá störfum fyrir ÖBÍ réttindasamtök þar sem hún var formaður barnamálahóps. Þar sem að ÖBÍ réttindasamtök gera kröfu um tiltekna virkni af hálfu þeirra félaga sem hljóta rekstrarstyrki, meira en bara þátttöku í formannafundum og aðalfundi, væri jákvætt ef að félagið ætti fulltrúa í einhverri þeirra fjölmörgu nefnda sem þar eru í boði. Þetta er mál sem skoða þarf á komandi starfsári.

 

Auk stjórnarsetu í stjórn SÍBS og AO sat Fríða Rún sem varamaður í stjórn Múlabæjar og Hlíðarbæjar af hálfu SÍBS en hún var kjörin til tveggja ára.

 

Fræðslu- og útgáfumál.

Eitt veglegt AO tímaritið var gefið út á árinu, líkt og árið á undan, en útgáfa þess er mikilvæg fyrir okkur til að vera sýnilegri út á við til viðbótar við samfélagsmiðla og heimasíðu. Nutum við aðstoðar Bergþóru Stefánsdóttur við ritstjórn, efnis öflun, ritun greina/viðtala og öflun auglýsinga. Blaðið var að vanda sett á heimasíðuna til viðbótar við þau 1500 eintök sem fóru í póst en ánægjulegt er að sjá blaðið liggja frammi hjá læknum, tannlæknum og á Landspítala.

Kræsingar halda áfram að seljast smátt og smátt, og er almenn ánægja með bókina. Bókin er enn notuð í námi matartæknanema hjá MK og víðar.

 

Vinna við nýja heimasíðu var mjög áberandi á árinu, fenginn var verktaki, Gunnhildur Arna Gunnarsdóttir til að vinna verkefnið við hlið Tonie og Hermann Arnar var einnig með í verkefninu. Hermann hannaði spjallmennið Spjall Ara sem er virklega vel heppnað, gefur rétt og góð svör og er því góður liðsmaður okkar hjá AO.

 

Myndbönd, 3 talsins, voru unnin af SKOT production fyrir AO með stuðningi frá styrktarsjóði um bráðaofnæmi. Sigurveig Þ. Sigurðardóttir, Michael Clausen, Tonie Gertin Sörensen og Fríða Rún Þórðardóttir lögu sín lóð á vogarskálarnar sem leikarar í myndböndunum. Styktarsjóðurinn og Sólveig Guðjónsdóttir og Skot Production fá innilegar þakkir fyrir ómetanlegan stuðning.

 

Erlent samstarf.

Áfram er lítið samband er við hin norðurlöndin en vitað er af ýmsum manna breytingum hjá t.d. Noregi sem mögulega leiða til aukins samstarfs á næstunni.

 

Fríða Rún situr í stjórn EFA 2025-27 (sem er loka tímabilið mv. reglur EFA um stjórnarsetu) og tekur virkan þátt í starfi þess en auk tölvupóst samskipta voru fimm fundir á árinu. Mikið berst af tilkynningum um verkefni og málefni frá EFA og er margt mjög áhugavert. Reynum við bregðast við erindum og verkefnum sem EFA sendir inn og setur á laggirnar en í raun mætti segja að það þyrfti um heilan dag í viku bara til að skoða þessi verkefni og hvort og hvernig þau gætu nýst okkur. Sumu getur við þó ekki tekið þátt í þar sem við erum ekki í ESB. Nokkrir samráðshópar eru í gangi og tekur Fríða Rún þátt í starfi Fæðuofnæmishópsins sem er aðallega að berjast fyrir bættum merkingum á matvælum og afnám merkinganna „may contain traces off“ nema að ofnæmisvaldurinn sé raunverulega til staðar. Töluvert hefur miðast í þessari vinnu, tvær vísindagreinar voru birtar á árinu og í apríl 2026 munu leiðbeiningar verða gefnar út af Codex alimentaris og WHO.

 

Mjög áhugavert væri að reyna að þýða og deilda meira af efni frá EFA hér heima og þá ekki aðeins til almennings heldur einnig til fagfólks og til þar til bærra stofnana, mætti nefna upplýsingar um loftgæði í Evrópu, reglugerðir og árangur annarra þjóða. Slíkt krefst tíma og yfirlegu og var sótt um styrk, eyrnamerktann því en slíkur styrkur náðist ekki.

 

Styrktarsjóður:

Ekki var veitt úr styrktarsjóðnum 2025.

 

Minningasjóður um Hallbjörn Kristinsson

Veitt var úr sjóðnum í fyrsta sinn í janúar 2025 í fæðingarmánði Hallbjörns en til hans var stofnað í samráði við ekkju Hallbjörns, Sólveigu Óskarsdóttur. Markmiðið er að veita úr sjóðnum árlega, upphæð 200.000 kr og kæmi helmingur úr sjóðnum og helmingur frá AO. Einstaklingar sem hlotið geta styrk úr sjóðnum þurfa að vera í sérnámi í Ofnæmis og ónæmislækningum og vera með á döfinni verkefni eða ráðstefnu því tengt. Félags Ónæmis og ofænmislækna er ráðgefandi um styrkveitingar úr sjóðnum.

 

Starfsmannamál.

Starfsmaður AO, Tonie Gertin Sörensen, vinnur enn sömu daga og er í sömu prósentu eins og verið hefur á mánudögum frá kl. 9-15. Hún hefur starfað hjá félaginu í 25 ár. Fyrir utan fasta vinnu á skrifstofu, svarar hún oft póstum og erindum utan þess tíma og mætir á viðburði sé þess óskað eða jafnvel að eigin frumkvæði. Hún hefur næg verkefni á sinni könnu og stendur mjög vel fyrir sínu. Stjórn gætir þess að launamál séu endurskoðuð jafnóðum í takt við það sem tíðkast hjá hennar fagstétt. Ekki stendur til að auka við vinnuprósentu hennar eða að bæta við starfsmanni. Tonie sækir þau námskeið sem í boði eru til að styrkja sig í starfi.

Helstu verkefni 2026

 

Vinna vegna lagasetningar um dýrahald í fjölbýlishúsum.

>Hermann atkvæðamikill í þeirri vinnu, einnig Melkora. AO skilaði inn greinargerð og FÓO einnig. Hermann og Melkorka fóru í ráðuneytið og Hermann og Tonie á Alþingi þegar fjallað var um málið. Áframhald varðandi þetta snýr að gagnaöflun um tilfelli þar sem alvarleg einkenni eða staða koma upp vegna lagasetningarinnar. AO hefur kallað eftir upplýsingum frá félagsmönnum sem safnað verður saman og gögnin greind mtt. notkunar til að varpa ljósi á alvarleikann sem af þessu getur hlotist.

 

Heimasíðan.

Verkefninu er að mestu lokið

 

AO spjallmennið:

Prófun og kynning á AO spjallmenninu sem Hermann Arnar útbjó fyrir okkur.

 

Námskeiðahald:

Námskeið fyrir ungmenni með fæðuofnæmi er á döfinni. Félagið hefur lengi haft á prjónunum að halda sumarbúðir fyrir börn með fæðuofnæmi. Áhugi er fyrir að vinna málið áfram í kjölfarið á námskeiði fyrir ungmenni með fæðuofnæmi

 

Samstarf
Halda þarf áfram að efla tengslin við sérfræðilækna, 2025 gekk okkur betur með samtal og samvinnu. Samstarf við önnur sjúklingasamtök fór ekki af stað að neinu marki nema við vitum alltaf af samtökum Lungnasjúklinga og heyrum af og til frá Lind.

 

Ekkert hefur fréttst af vinnuhópi Umhverfisráðuneytis um framkvæmd Loftgæða áætlunar Evrópu og er óvíst með þá vinnu, þó áhugaverð og nauðsynleg hún sé.

 

Er snýr að útgáfumálum þá eru þrír bæklingar sem markmiðið var að koma í endurgerð 2025. Það voru bæklingar um fæðuofnæmi, astma fullorðinna og bæklingur um húðofnæmi. Hefur þetta verið viðrað við þá lækna sem komið hafa að skrifunum hingað til en vinnan varð ekki markviss vegna annarra verkefna.

 

Stjórn þarf að ræða um fræðslumálin og á hvaða formi hún ætti að vera. Stjórn ætti að gera úttekt á því hvernig best sé að miðla fræðslu í nútíma samfélagi til að mynda í gegnum heimasíðuna, öpp, vídeó. Skipa ritnefnd um þessi mál og taka læknana með í þeirri vinnu.

 

12.04.26 Fríða Rún Þórðardóttir, formaður AO