Ágætu félagsmenn á öllum aldri,
Eins og endranær leitar AO að þeim sem hyggjast eða langar að taka þátt í Reykjavíkurmaraþoni Íslandsbanka og
hlaupa þar 10 km, hálft- eða heilt maraþon og vilja um leið safna áheitum fyrir félagið en hér má finna allar upplýsingar um hlaupið
Í ár hefur yngri kynslóðin sýnt því áhuga að hlaupa saman 10 km og safna áheitum til að halda megi sjálfstyrkingarnámskeiði fyrir börn og unglinga með astma og ofnæmi og leitum við að fólki til að styðja við þetta átaksverkefni með áheitasöfnun og sýnileika.
Við hvetjum ykkur til að senda okkur póst á
ao@ao.is ef þið hafið áhuga,
og við tengjumst sterkum böndum til að gera þetta saman.
Bolir og leiðsögn í boði.
Kveðja frá AO