Ágæti lesandi

Reykjavíkurmaraþon Íslandsban k fer fram 19. ágúst nk. Hlaupurum í Reykjavíkurmaraþoni Íslandsbanka gefst kostur á að hlaupa til styrktar góðs málefnis. Áheitasöfnunin fer fram á Hlaupastyrkur.is - Reykjavíkurmaraþon Íslandsbanka (rmi.is) og er hægt að velja á milli fjölmargra góðgerðafélaga.
Ef þú hefur áhuga á að hlaupa til styrks fyrir Astma- og ofnæmisfélag Íslands þá viljum gjarnan heyra frá þér og bjóða þér æfingabol merktan AO
Þeir sem opnir eru fyrir þessari hugmynd eru beðnir um að hafa samband með því að senda póst á ao@ao.is og á Fríðu Rún formann AO frida@heilsutorg.is og við höfum svo samband til baka.
Einnig bendum við á að ef að AO félagi hefur einhverjar spurningar varðandi undirbúninginn getur hann eða hún sent póst á Fríðu Rún sem hefur ágæta reynslu á hlaupa- og næringarsviðinu auk þess að vera þjálfari hlaupahóps.
Með kveðju
Astma- og ofnæmisfélag Íslands.