Astma og ofnæmisfélag Íslands auglýsir eftir umsóknum um styrki í Styrktarsjóð félagsins sem heldur upp á 50 ára afmæli sitt í ár en stofnað var til sjóðsins í minningu Þórunnar Kristjánsdóttur og Ísaks Bjarnasonar frá Fífuhvammi í mars árið 1976.
Umsóknir skulu miðaðar að verkefnum sem samræmast tilgangi sjóðsins sem er að:
- stuðla að aukinni þekkingu á astma-, ofnæmis- og ónæmissjúkdómum.
- styrkja lækna og aðra sem leita sér fagþekkingar á ofangreindum sjúkdómum og kunnáttu í meðferð þeirra með framhaldsnámi eða rannsóknum á þessu sviði.
Umsókn þarf að innihalda upplýsingar um umsækjandann, í hverju verkefnið felst, áætlaðan kostnað við verkefnið, dagsetningu verkefnis og stutta greinargerð um gildi verkefnissins fyrir markhóp þess og þar með starf Astma- og ofnæmissfélags Íslands.
Félagið getur óskað eftir upplýsingum um afurð verkefnisins sem efni í greinargerð tímarit félagsins.
Umsóknir skulu berast á rafrænu formi fyrir miðnætti þann 19. maí 2026 á netfangið ao@ao.is og frida@heilsutorg.com með fyrirsögninni „Styrkumsókn 2026“
Nánari upplýsingar veitir Fríða Rún Þórðardóttir, formaður Astma og ofnæmisfélags Íslands í síma 898-8798 eða á netfangið frida@heilsutorg.com