Reykjavíkurmaraþon Íslandsbank 24. ágúst 2024 - Viltu hlaupa fyrir AO?

Ágæti lesandi,

Reykjavíkurmaraþon Íslandsbank fer fram 24. ágúst nk. Hlaupurum í Reykjavíkurmaraþoni Íslandsbankagefst kostur á að hlaupa til styrktar góðs málefnis. Áheitasöfnunin fer fram á hlaupastyrkur.is og er hægt að velja á milli fjöl margra góðgerðafélaga.

Astma-og ofnæmisfélag Íslands - Reykjavíkurmaraþon Íslandsbanka (rmi.is)

Allir þátttakendur í Reykjavíkurmaraþoni Íslandsbanka geta tekið þátt í áheitasöfnuninni. Til þess að safna áheitum verður einstaklingurinn að vera skráður í hlaupið. Á mínum síðum er síðan hægt að velja góðgerðarfélag og setja upp þína síðu til að byrja að safna.

Sjá leiðbeiningar hér

Ef þú hefur áhuga á að hlaupa til styrks fyrir Astma- og ofnæmisfélag Íslands þá viljum gjarnan heyra frá þér og bjóða þér æfingabol merktan AO.

Þeir sem opnir eru fyrir þessari hugmynd eru beðnir um að hafa samband með því að senda póst á ao@ao.is og á Fríðu Rún formann AO frida@heilsutorg.is og við höfum svo samband til baka.

Einnig bendum við á að ef að AO félagi hefur einhverjar spurningar varðandi undirbúninginn getur hann eða hún sent póst á Fríðu Rún sem hefur ágæta reynslu á hlaupa- og næringarsviðinu auk þess að vera þjálfarihlaupahóps.

 

Með kveðju,

Astma- og ofnæmisfélag Íslands.