Ágæti lesandi
Reykjavíkurmaraþon Íslandsbanka fór ekki varhluta af Covid faraldrinum svo fresta þurfti viðburðinum í tvígang. Í ár er skipulagning hlaupsins hins vegar kominn á fullt skrið þar á meðal áheitasöfnunin „Hlauptu til góðs“ sem margir þekkja.
Við hjá AO erum mjög þakklát þeim sem hlaupið hafa til góðs í okkar þágu í gegnum árin en þeir hafa safnað fé sem AO hefur síðan notað til að styrkja ýmiss verkefni meðal annars námskeið fagfólks erlendis og til kaupa á tækjabúnaði fyrir nýburaskimun á ónæmisgöllum sem notað er á Landspítala.
Okkur hjá AO langar að komast í samband við þá sem hafa á liðnum árum safnað áheitum fyrir AO og einnig þá sem stefna á þátttöku í hlaupinu í ár og myndu vilja skrá AO sem sitt málefni til að hlaupa fyrir.

Í staðinn mun AO gefa hlauparanum æfingabol merktan AO og í aðdraganda hlaupsins fylgjast með því hvernig æfingar ganga og söfnun áheita. Við höfum hugmyndir um að birta mynd af hlaupurum á FB síðu AO og hvetja þannig þá sem fylgja okkur, til að heita á hlauparana og hvetja þá þannig áfram í undirbúningnum og við áheitasöfnunina.
Þeir sem opnir eru fyrir þessari hugmynd eru beðnir um að hafa samband með því að senda póst á ao@ao.is og á Fríðu Rún formann AO frida@heilsutorg.is og við höfum svo samband til baka.
Einnig bendum við á að ef að AO félagi hefur einhverjar spurningar varðandi undirbúninginn getur hann eða hún sent póst á Fríðu Rún sem hefur ágæta reynslu á hlaupa- og næringarsviðinu auk þess að vera þjálfari hlaupahóps.
Með kveðju
Astma- og ofnæmisfélag Íslands.