Kæri AO félagi og aðrir viðtakendur og velunnarar
Vonum að þið hafið það sem best og séuð að njóta sumarsins við góða heilsu.
Astma- og ofnæmisfélag Íslands (AO) er á lista þeirra góðgerðarfélaga sem hlaupið er fyrir í Reykjavíkurmaraþoni Íslandsbanka sem fram fer í laugardaginn 21. ágúst næstkomandi.
Undanfarin ár hafa félagar í AO og aðstandendur einstaklinga með astma og ofnæmi hlaupið til góðs og safnað fjárhæðum sem hafa verið notaðir til að styrkja verkefni, fræðslu og rannsóknir í þágu astma og ofnæmis.
Þeir sem hlaupa eru þó ekki einir í liðinu okkar því hlaupararnir hafa fengið hvatningu og áheit frá öðrum félögum og velunnurum sem hafa mætt við hlaupaleiðina og hvatt hlauparana áfram. Þannig leggja margir sitt lóð á vogarskálina.
Ef þú vilt hlaupa til góðs og safna áheitum fyrir Astma- og ofnæmisfélag Íslands, félagið okkar, getur þú skráð þig til leiks á www.marathon.is eða http://www.hlaupastyrkur.is/
Ef þú vilt taka þátt með því að heita á einhvern af okkar frábæru hlaupurum sem leggja félaginu okkar lið getur þú farið inn á http://www.hlaupastyrkur.is/einstaklingar/ og valið hlaupagarp.
Við hvetjum einnig einstaklinga til að hreyfa sig og huga að heilsunni á þann máta.
Það væri gaman að heyra í þeim sem að ætla að hlaupa fyrir okkur í ár, vinsamlegast sendu póst á ao@ao.is og við svörum um hæl.
AO ætlar að gefa þeim sem hlaupa fyrir félagið bol til að hlaupa í þannig að endilega hafa samband og tilgreina bolastærð.
Gangi þér/ykkur vel
Með bestu kveðjum,
Stjórn Astma- og ofnæmisfélags Íslands