Ómerkt egg og lúpína í Bónus ristuðum karamelluhnetum

Matvælastofnun varar neytendur með ofnæmi fyrir eggjum eða lúpínu við neyslu á ristuðum karamelluhnetum sem merktar eru Bónus. 

Varan getur innihaldið snefilmagn af ofnæmis- og óþolsvöldunum egg og lúpínu án þess að það komi fram á umbúðum.

Aðföng hefur innkallað allar framleiðslulotur úr verslunum Bónusar, í samráði við Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur.