NÁTTÚRUFRÆÐISTOFNUN ÍSLANDS birta frjókornaspá

Á vef www.ni.is er birt frjókornaspá. Fylgstu með hér


Frjókornaspár fyrir Akureyri og höfuðborgarsvæðið eru uppfærðar alla virka daga fram til septemberloka en þá lýkur frjótímabilinu hér á landi. Við gerð frjókornaspár eru frjómælingagögn og nýjasta veðurspá notuð til að áætla hversu mikið af frjókornum má búast við næstu dagana.

Magn frjókorna er flokkað í flokkana: „ekkert“, „lítið“, „miðlungs“ eða „hátt“.

Spáin segir til um hvaða frjókorna má vænta í andrúmsloftinu  og hver væntanleg þróun í fjölda þeirra er.