Annað ofnæmislausa jólaball Astma- og ofnæmisfélags Íslands verður haldið í húsnæði SÍBS, að Síðumúla 6 í Reykjavík, 3. janúar 2016 kl. 14-16.
Vinsamlegast tilkynnið komu ykkar á jólaballið okkar með því að skrá ykkur hér: http://goo.gl/forms/tzK88QAHMj fyrir 28. desember 2015 með upplýsingum um fjölda barna og fullorðinna. Á jólaballinu skemmtir frábært hljómsveit skipuð félögum í SÍBS og jólasveinar mæta á svæðið, dansa í kringum jólatréð með börnunum og færa þeim flotta poka með skemmtilegu dóti í. Einnig verður boðið upp á veitingar sem henta gestum jólaballsins.

Einnig er gott að fá upplýsingar um það ofnæmi sem um ræðir.
Systkini eru velkomin með á jólaballið en aðgangur er ókeypis.
Með von um að sjá sem flesta,
Stjórn Astma- og ofnæmisfélag Íslands