Námskeið í Menntaskólanum í Kópavogi
Námskeið um eldun ofnæmisfæðis á vegum Astma- og ofnæmisfélags Íslands (AO) 12. og 13. apríl 2016.
Markmiðin
Meginmarkmiðið með námskeiðinu er að bjóða upp á faglega fræðslu um fæðuofnæmi, alvarleika þess og hvernig tryggja megi góða og holla næringu. Það getur verið flókið að tryggja öruggt fæði og umhverfi fyrir einstakling með fæðuofnæmi. Ljóst er að næringarefni geta orðið af skornum skammti þegar fæðuofnæmi er til staðar og felst fræðslan m.a. í því hvaða fæðutegundir geta komið í staðinn fyrir mjöl, korn, mjólk egg, fisk, hnetur o.fl. til að fullnægja orku- og næringarlegum þörfum og skapa fjölbreytni í fæðu barna.
Markhópur

Matráðir í eldhúsum í leik-, grunn- og framhaldsskólum, á sjúkrahúsum og öldrun
arstofnunum. Einnig heimilisfræðikennarar, starfsmenn og stjórnendur í skólum.
Þriðjudagur 12. apríl, kl. 14:30 – 17:00
Bóklegt 2 ½ klst
*Tryggjum næga orku og góða næringu með hollum, góðum og öruggum mat Fríða Rún
Kaffihlé
*Öryggi og ábyrgð gagnvart börnum og ungmennum með fæðuofnæmi. Selma
Umræður
Miðvikudagur 13. apríl, kl. 14:00 – 18:00
Verklegt: 4 klst

*Eldum góðan og næringarríkan mat fyrir alla, einnig börn og ungmenni með ofnæmi og óþol. Margrét
Umræður og smakk
Skráning, skráningarfrestur, fjöldi og námskeiðsgjald.
Skráning fer fram hér: http://goo.gl/forms/I5tj0w6oh6
Skráningarfrestur er til og með 5. apríl.
Greiða þarf 8000 kr. staðfestingargjald við skráningu:
Bankareikningur 0113-05-570194,
Kennitala 5904740109
Senda kvittun á: ao@ao.is
Vinsamlega greiðið aðeins eitt gjald í hverri færslu þannig að hægt sé að sjá fyrir hvern er verið a
ð greiða eða sendið póst á ao@ao.is og tilgreinið fyrir hvern var greitt á.
Forsendur þess að námskeiðið verði haldið er að næg þátttaka fáist. Lágmarksfjöldi er 15 manns.
Kostnaður: 23.000 kr
Kennarar
Selma Árnadóttir, stjórnarmaður í AO og móðir ofnæmisbarns.
Fríða Rún Þórðardóttir, næringarfræðingur og næringarráðgjafi Eldhúsi Landspítala, formaður AO.
Margrét S. Sigbjörnsdóttir, kennari og umsjónaraðili með matartæknanemum við Menntaskólann í Kópavogi.
Annað
Sýndar verða ýmsar sérfæðisvörur auk þess sem matreiðslubókin Kræsingar verða til sölu.
Nánari upplýsingar veitir:
Fríða Rún Þórðardóttir
Formaður AO
frida@heilsutorg.is
898-8798