Hvað er fæðuofnæmi og -óþol?

Námskeiðið er hugsað fyrir hvern þann sem starfar við matreiðslu / matargerð og langar að bæta við þekkingu sína á fæðuofnæmi og -óþoli, þekkja helstu ofnæmis- og óþolsvaldana og hvernig stuðla má að góðri næringu og fjölbreytni þrátt fyrir fæðuofnæmi og -óþol.
 
Markmið námskeiðsins er að efla þekkingu þátttakenda og auka skilning og ábyrgð starfsmann í eldhúsinu þegar kemur að fæðuofnæmi & -óþoli.
 
Námskeiðið er bæði bóklegt og verklegt. 3 klst. hvorn dag.
 
skrá mig
 
Dagsetning
  • Þriðjudagur 18. febrúar kl. 15-18
  • Miðvikudagur 19. febrúar kl. 15-18
 
Staðsetning: IÐAN fræðslusetur, Vatnagörðum 20
 
 
Bóklegur hluti:
  • Kynning á nemendum og kennurum.
  • Hvað er fæðuofnæmi & -óþol, greining, algengi, helstu ofnæmis- og óþolsvaldarnir, hvernig stuðlum við að góðri næringu og fjölbreytni þrátt fyrir fæðuofnæmi og -óþol.
  • Samfélagsleg ábyrgð gagnvart börnum og ungmennum með fæðuofnæmi og hvernig vinna fjölskyldur og einstaklingar með aðilum í skólum, leikskólum, frístunda- og íþróttastarfi og öðru sem tengist daglegu lífi í að skapa gott og öruggt samfélag fyrir öll.
  • Kynning á viðbragðsáætlun Astma og ofnæmisfélags Íslands.
 
Verklegur hluti:
  • Kynning á kennara og farið yfir vinnuaðstöðuna.
  • Kynning á ýmsum vörum fyrir mismunandi ofnæmis- og óþolsfæði.
  • Farið yfir vörutegundir og notkunarmöguleikar ræddir.
  • Umræður og spurningar.
  • Nemendur og kennari finna viðeigandi verkefni úr matreiðslubókinni. Kræsingar án ofnæmisvalda Höfundur Alice Sherwood. Þýdd af Fríðu Rún Þórðardóttur.
  • Verkleg matreiðsla; nemendur velja verkefni í samræmi við þarfir þeirra og vinnustaðarins.
  • Smökkun og umræður.

 

Verð:
  • Fullt verð 26.000 kr.-
  • Verð til aðila IÐUNNAR 6.500 kr.-
 
Kennarar:
  • Fríða Rún Þórðardóttir næringarfræðingur og formaður Astma- og Ofnæmisfélags Íslands
  • Selma Árnadóttir varaformaður Astma- og Ofnæmisfélags Íslands
  • Guðný Jónsdóttir næringarrekstrarfræðingur og matreiðslukennari í MK.
 
Tengiliður

Valdís Axfjörð Snorradóttir

valdis@idan.is