Upptaka af fyrirlestrinum
Í fyrirlestrinum veltum við upp eftirfarandi spurningum:
- Er ekki bara nóg að sópa göturnar oftar?
- Skipta nagladekkin einhverju máli?
- Hvað er rykbinding?
- Skiptir máli hversu hratt er ekið?
Við fjöllum um svifryksmengun frá vegyfirborði og áhrif umferðar á magn svifryks. Við beinum sjónum að notkun nagladekkja, gatnaþrifum og rykbindingu.
Fyrirlesturinn flytur Þorsteinn Jóhannsson, sérfræðingur í teymi loftgæða og losunarheimilda hjá Umhverfisstofnun.
Hluti af stefnu Umhverfisstofnunar er að stuðla að grænu og framsýnu samfélagi. Í því felst m.a. að veita góð ráð varðandi umhverfisvænan lífsstíl.
Heimasíða Umhverfisstofnunar