Hjá Astma- og ofnæmisfélagi Íslands (AO) er starfandi foreldrahópur en hann stendur reglulega fyrir foreldrahittingum fyrir foreldra barna með astma og/ eða ofnæmi. Markmið hópsins er að vinna í samvinnu við AO að málefnum barna með astma og ofnæmi, gefa foreldrum færi á persónulegum skoðanaskiptum og standa saman að fræðslu og baráttu fyrir réttindum þessa hóps.
Það getur verið yfirþyrmandi að fá þær fréttir að barnið manns sé með ofnæmi og/eða astma. Það er margt að læra og við taka ný krefjandi verkefni fyrir foreldra og aðra umönnunaraðila barnsins.
Foreldrahittingar eru hugsaðir sem vettvangur fyrir foreldra og aðra umönnunaraðila barna með ofnæmi og/eða astma til þess að hittast og spjalla við foreldra í svipuðum aðstæðum. Á foreldrahittingum gefst tækifæri til þess að deila sinni reynslu, fá ráð frá öðrum og miðla þekkingu sinni til annarra foreldra sem eru að kljást við svipuð verkefni sem tengjast ofnæmi og/eða astma barna þeirra. Á foreldrahittingum AO fá allir þátttakendur tækifæri á því að spyrja spurninga og tjá sig um mál sem brennur á þeim. Þar skapast oft góðar og hjálplegar umræður sem hafa nýst foreldrum vel í umönnun barna sinna.
Foreldrahittingar eru tilvalin stund til að hitta aðra sem eru í svipuðum sporum og getur verið gott að spegla sig í upplifun annarra. Foreldrahittingarnir eru haldnir reglulega eins og áður segir og eru auglýstir á vefsíðu AO sem og á samfélagsmiðlum félagsins.
Harpa Rut Hafliðadóttir,
stjórnarmeðlimur astma- og ofnæmisfélags Íslands
Fréttin birtist fyrst í 19. árg 1. tbl. 2025 tímariti Astma- og ofnæmisfélags Íslands