Félagsgjald 2025

Ágæti félagsmaður,

Innheimta félagsgjalda Astma- og ofnæmisfélags Íslands fyrir árið 2025 hefur verið send út í heimabanka skráðra félaga eða foreldra barna.

Gjalddagi er 1. desember 2025.

 

Við vonum að félagsmenn viti að þeir geta leitað til félagsins með mál sem varða astma og ofnæmi. Við værum einnig þakklát fyrir að heyra hvernig við getum bætt þjónustu okkar og upplýsingaflæði til ykkar.

 

Starfsmaður félagsins er á skrifstofunni alla mánudaga frá kl. 9:00 til 15:00 og netfangið er ao@ao.is.

 

Netfang formanns AO, Fríðu Rúnar Þórðardóttur, er frida@heilsutorg.is. Hún, ásamt stjórninni, er til staðar til að aðstoða eftir bestu getu.