Starfsfólk í mötuneytum, matráðar, matreiðslumenn
Markmið námskeiðsins er að auka þekkingu á fæðuofnæmi og fæðuóþoli, á einkennum, algengi og afleiðingum fæðuofnæmis og fæðuóþols. Í framhaldi er farið yfir úrræði og leiðbeiningar í fæðismeðferð og matreiðslu.
Námskeiðið skiptist í tvo hluta. Í fyrsta hlutanum er farið yfir skilgreiningar, helstu fæðuofnæmis- og óþolsvalda, einkenni fæðuóþols og ofnæmis, um greiningar á ofnæmi og óþoli, um fæðuofnæmi og næringu og fl. Kennari er Fríða Rún Þórðardóttir, næringarfræðingur og formaður Astma- og ofnæmisfélags Íslands.
Í seinni hlutanum er fjallað um úrræði í fæðismeðferð og matreiðslu fyrir þau sem eru með fæðuofnæmi og/eða fæðuóþol, um merkingu matvæla og vöruval og þætti sem hafa þarf að hafa í huga við matreiðslu fyrir fólk með fæðuofnæmi og fl. Kennari er Selma Árnadóttir, varaformaður Astma- og ofnæmisfélags Íslands.
Skráning hér
Dagsetning:
25. feb. kl: 14:00-16:00 og 3. mars kl: 14:00-16:00
Kennari:
Fríða Rún Þórðardóttir og Selma Árnadóttir
Verð:
4.000 kr.-, Verð til aðila IÐUNNAR 2.500 kr.-
Tengiliður:
Ólafur Jónsson netfang: olafur@idan.is