Starfsfólk í mötuneytum, matráðar, matreiðslumenn
|
Tími
|
Hefst 4. maí kl: 14:00
|
|
Lengd
|
4 klukkustundir
|
|
Kennarar
|
Fríða Rún Þórðardóttir
Selma Árnadóttir
|
|
Verð
|
Fullt verð 4.000 kr.-
Verð til aðila IÐUNNAR 2.500 kr.-
|
|
Tengiliður
|
|
Markmið námskeiðsins er að auka þekkingu á fæðuofnæmi og fæðuóþoli, á einkennum, algengi og afleiðingum fæðuofnæmis og fæðuóþols. Í framhaldi er farið yfir úrræði og leiðbeiningar í fæðismeðferð og matreiðslu. Námskeiðið skiptist í tvo hluta.
Í fyrsta hlutanum er farið yfir skilgreiningar, helstu fæðuofnæmis- og óþolsvalda, einkenni fæðuóþols og ofnæmis, um greiningar á ofnæmi og óþoli, um fæðuofnæmi og næringu og fl. Kennari er Fríða Rún Þórðardóttir, næringarfræðingur og formaður Astma- og ofnæmisfélags Íslands.
Í seinni hlutanum er fjallað um úrræði í fæðismeðferð og matreiðslu fyrir þau sem eru með fæðuofnæmi og/eða fæðuóþol, um merkingu matvæla og vöruval og þætti sem hafa þarf að hafa í huga við matreiðslu fyrir fólk með fæðuofnæmi og fl. Kennari er Selma Árnadóttir, varformaður Astma- og ofnæmisfélags Íslands.
Skráning hér