Fæðuofnæmi og eldun ofnæmisfæðis 1. og 3. febrúar 2022 - fjarnám

Starfsfólk í mötuneytum, matráðar, matreiðslumenn 

Dagsetning og tími


1. feb. kl.14 (fjarnám) og

3. feb. kl.14 (fjarnám) 

Lengd 4 klukkustundir

Kennarar


Fríða Rún Þórðardóttir (1/2-22) og 

Selma Árnadóttir (3/2-22) 

 
Fullt verð 9.000 kr.
Verð til aðila IÐUNNAR    3.500 kr
Tengiliður Ólafur Jónsson  olafur@idan.is

 

 

 

 

 

 

 


Markmið námskeiðsins er að auka þekkingu á fæðuofnæmi og fæðuóþoli, á einkennum, algengi og afleiðingum fæðuofnæmis og fæðuóþols. Í framhaldi er farið yfir úrræði og leiðbeiningar í fæðismeðferð og matreiðslu.

skráning hér

Námskeiðið skiptist í tvo hluta.

Í fyrsta hlutanum er farið yfir skilgreiningar, helstu fæðuofnæmis- og óþolsvalda, einkenni fæðuóþols og ofnæmis, um greiningar á ofnæmi og óþoli, um fæðuofnæmi og næringu og fl.

Kennari er Fríða Rún Þórðardóttir, næringarfræðingur og formaður Astma- og ofnæmisfélags Íslands.


Í seinni hlutanum er fjallað um úrræði í fæðismeðferð og matreiðslu fyrir þau sem eru með fæðuofnæmi og/eða fæðuóþol, um merkingu matvæla og vöruval og þætti sem hafa þarf að hafa í huga við matreiðslu fyrir fólk með fæðuofnæmi og fl.

Kennari er Selma Árnadóttir, varaformaður Astma- og ofnæmisfélags Íslands. 

Iðan - Fæðuofnæmi og eldun ofnæmisfæðis - fjarnám (idan.is)