Pistill eftir málþingið 15.janúar sl

Michael Clausen með erindið
Michael Clausen með erindið "Fæðuofnæmi í nýju ljósi"

Ágætu félagsmenn

Við þökkum afar góðar undirtektir við málþingið sem félagið hélt 15. janúar sl. Um 50 manns mættu á staðinn eða hlustuðu í streymi og við náðum markmiðinu með góðum erindum og þátttöku, góðri samveru og spjalli.

Á málþinginu, sem við munum gera skil í næsta tímariti, voru fræðandi erindi flutt og við veittum styrk til Rebekku Sigrúnar D. Lynch úr Minningarsjóði Hallbjörns Kristinssonar en sjóðurinn er ætlaður til að styðja við læknanema í sérfræðinámi í ofnæmis- og ónæmisfræðum. Auk þessa opnuðum við nýju AO heimasíðuna og frumsýndum myndbönd um fæðuofnæmi sem styrktar sjóður um Bráða fæðuofnæmi styrkti og unnin voru af SKOT.

Af myndböndunum er það að segja að það er til skoðunar að koma þeim inn í fræðslu í skólakerfin í Reykjavík. Við munum einnig vinna að því að dreifa myndböndunum eins víða og hægt er og eru skólastjórnendur alstaðar á landinu hvattir til að hafa samband við félagið til að nálgast myndböndin og koma þeim í sýningu í sínum skóla.

Að lokum, þá mun RÚV vera með myndböndin í sýningu og eru komnar dagsetningar á þeim sýningum:

  • 30. janúar kl. 18:20, á eftir undanúrslitum á EM karla í handbolta.
  • 9. febrúar kl. 11.15, inn á milli dagskrárliða á Vetrarólympíuleikunum.
  • 14. febrúar kl. 10:00 á eftir morgunbarnaefni.

Við vonum að starfið okkar skili sér sem best til ykkar kæru félagsmenn og við biðjum ykkur um að hika ekki við að hafa samband ef að við getum verið ykkur til aðstoðar.

Einnig hvetjum við ykkur til að heimsækja nýju heimasíðuna okkar www.ao.is til að njóta þeirra fræðslu sem þar er og mun verða í framtíðinni. Við erum stolt af nýju síðunni og vonum að hún muni nýtast ykkur vel.

Stjórn AO