Astma og Ofnæmisfélag Íslands auglýsir eftir umsóknum um styrki í Styrktarsjóð félagsins sem veitt verður úr í samræmi við tilgang sjóðsins sem er að:
- Stuðla að aukinni þekkingu á astma- og ofnæmissjúkdómum.
- Styrkja lækna og aðra sem leita sér fagþekkingar á ofangreindum sjúkdómum og kunnáttu í meðferð þeirra með framhaldsnámi eða rannsóknum á þessu sviði.
Umsóknin þarf að innihalda upplýsingar um umsækjandann, í hverju verkefnið felst, áætlaðan kostnað, dagsetningu og stutta greinargerð um gildi verkefnissins fyrir Astma- og ofnæmissjúka á Íslandi.
Umsóknir skulu berast á rafrænu formi fyrir miðnætti þann 24. mars nk. á netfangið ao@ao.is og frida@heilsutorg.com með fyrirsögninni „Styrkumsókn 2024“
Styrkirnir verða afhenti á 50 ára afmæli félagsins þann 16. apríl nk.
Nánari upplýsingar veitir:
Fríða Rún Þórðardóttir, formaður Astma og ofnæmisfélags Íslands
Sími: 898-8798. Netfang: frida@heilsutorg.com