Auglýsing um styrki 2018

Astma- og ofnæmisfélag Íslands auglýsir eftir umsóknum um styrk úr Styrktarsjóði félagsins sem veitt verður úr í samræmi við tilgang sjóðsins sem er að:

  • * stuðla að aukinni þekkingu á astma- og ofnæmissjúkdómum.
  • * styrkja lækna og aðra sem leita sér fagþekkingar á ofangreindum sjúkdómum og kunnáttu í meðferð þeirra.

Í umsókn þarf að koma fram upplýsingar um umsækjandann, í hverju verkefnið felst, kostnaðaráætlun, dagsetningu loka verkefnisins og stutt greinargerð um gildi verkefnisins fyrir astma- og ofnæmissjúka á Íslandi.

Umsóknir skulu berast á rafrænu formi fyrir miðnætti þann 28. maí nk. á netfangið ao@ao.is og frida@heilsutorg.com með fyrirsögninni „Styrkumsókn AO 2018

Styrkurinn verður afhentur á aðalfundi félagsins 5. júní n.k.

Nánari upplýsingar veitir Fríða Rún Þórðardóttir, formaður Astma- og ofnæmisfélags Íslands í síma 898-8798 eða frida@heilsutorg.com

F.h. Styrktarsjóðs Astma- og ofnæmisfélags Íslands

Fríða Rún Þórðardóttir, formaður