Auglýsing um styrki 2016

Auglýsing um styrki

Astma- og ofnæmisfélag Íslands auglýsir eftir umsóknum um styrki úr Styrktarsjóði félagsins sem veitt verður úr í samræmi við tilgang sjóðsins sem er að:

* stuðla að aukinni þekkingu á astma- og ofnæmissjúkdómum.

* styrkja lækna og aðra sem leita sér fagþekkingar á ofangreindum sjúkdómum og kunnáttu í meðferð þeirra.

Í umsókn þarf að koma fram upplýsingar um umsækjandann, í hverju verkefnið felst, kostnaðaráætlun, dagsetningu loka verkefnisins og stutta greinargerð um gildi verkefnisins fyrir astma- og ofnæmissjúka á Íslandi.

Umsóknir skulu berast á rafrænu formi fyrir miðnætti þann 6. mars nk. á netfangið ao@ao.is og frida@heilsutorg.com með fyrirsögninni „Styrkumsókn AO 2016“

Styrkirnir verða afhenti á aðalfundi félagsins í apríl/maí. Nánari upplýsingar veitir Fríða Rún Þórðardóttir, formaður Astma- og ofnæmisfélags Íslands í síma 898-8798 eða frida@heilsutorg.com

 

F.h. Astma- og ofnæmisfélags Íslands

Fríða Rún Þórðardóttir, formaður