Astma- og ofnæmisfélag Íslands auglýsir eftir umsóknum um styrki úr Styrktarsjóði félagsins sem veitt verður úr í samræmi við tilgang sjóðsins sem er að:
* stuðla að aukinni þekkingu á astma- og ofnæmissjúkdómum.
* styrkja lækna og aðra sem leita sér fagþekkingar á ofangreindum sjúkdómum og kunnáttu í meðferð þeirra.
Í umsókn þurfa að koma fram upplýsingar um umsækjandann, hvað felist í verkefninu og hvenær áætlað er að verkefninu ljúki. Einnig skal umsókn fylgja kostnaðaráætlun og stutt greinargerð um gildi verkefnisins fyrir astma- og ofnæmissjúka á Íslandi.
Umsóknir skulu sendar á rafrænu formi fyrir miðnætti þann 6. apríl nk. á netfangið ao@ao.is og frida@heilsutorg.com með fyrirsögninni „Styrkumsókn AO 2015“.
Styrkirnir verða afhenti á aðalfundi félagsins í apríl/maí.
Nánari upplýsingar veitir Fríða Rún Þórðardóttir, formaður Astma- og ofnæmisfélags Íslands í síma 898-8798 eða í gegnum netfangið frida@heilsutorg.com
F.h. stjórnar styrktarsjóðs Astma- og ofnæmisfélags Íslands,
Fríða Rún Þórðardóttir, formaður