Aðalfundur Astma- og ofnæmisfélags Íslands verður haldinn þriðjudaginn 14. apríl kl. 17:00 í húsakynnum SÍBS að Borgartúni 28A.
Gengið er inn í húsið, hægra megin og um innganginn til vinstri (vinsamlegast hringið bjöllunni ef ekki er opið).
Dagskrá:
Venjulega aðalfundarstörf.
Þeir sem óska eftir að sitja fundinn í gegnum fjarfundarbúnað eru vinsamlegast beðnir um að hafa samband við skrifstofuna á ao@ao.is eða hringja í síma 560 4814 eða 552 2150 milli kl. 9 og 15 á mánudögum
Allir félagsmenn hjartanlega velkomnir
Stjórn Astma- og ofnæmisfélags Íslands