MedicAlert merkið varðveitir upplýsingar fyrir lækna og viðbragðsaðila til þess að hægt sé að bregðast rétt við þegar mikið liggur við.
MedicAlert eru alþjóðleg öryggissamtök sem veita upplýsingar um merkisbera á neyðarstundu. Á Íslandi eru yfir 6.000 einstaklingar sem bera merkið en milljónir merkisbera eru í yfir 40 löndum víðsvegar um heiminn.
Þeir sem helst hafa hag af því að bera MedicAlert eru þeir sem búa við sjúkdóma eða ofnæmi þar sem réttar upplýsingar geta skipt meginmáli í meðhöndlun.
Hægt er að kynna sér MedicAlert merkið á heimasíðunni okkar ao.is eða á heimasíðunni Medicalert.is. Margskonar merki eru í boði, jafnt fyrir börn og fullorðna í ýmsum útgáfum.
Fréttin birtist fyrst í 19. árg 1. tbl. 2025 tímariti Astma- og ofnæmisfélags Íslands