Tilkynningar

DÁSAMLEGUR MATUR SEM ALLIR GETA NOTIÐ Hin breska Alice Sherwood er...
Opnunartími skrifstofu
Gerast félagi
ao vidbragsaaetlun hnappur

Skráning á póstlista

Minningarkort
Tímarit
Fræðslumyndbönd
Medic Alert
SÍBS

 

 

 ht logo big neg1

Tilmæli AstraZeneca til notenda Bricanyl Turbuhaler um að athuga lotunúmer lyfsins (LOT 3510548B00)

 image galleryVið viljum vekja athygli á því að AstraZeneca hefur í dag gefið út fréttatilkynningu í samráði við Lyfjastofnum. Ástæða fréttatilkynningarinnar er sú að að hætta er á því að eitt Bricanyl Turbuhaler 0,5 mg (100 skammtar) innöndunartæki með lotunúmer 3510548B00 geti verið tómt. Eingöngu er um að ræða eitt Turbuhaler innöndunartæki úr þessari einu framleiðslulotu. Af öryggisástæðum eru notendur Bricanyl Turbuhaler 0,5 mg beðnir um að athuga lotunúmer (Batch) á þeim innöndunartækjum sem þeir hafa undir höndum.

Sjá einnig á www.vistor.is

 

 

Sjúklingum, umönnunaraðilum og heilbrigðisstarfsmönnum er bent á að hafa samband við starfsmenn Vistor hf. í síma 535 7000 óski þeir eftir frekari upplýsingum.

Muna að greiða félagsgjaldið

muna að greiða félagsgjald

 

Ágæti félagsmaður

Við tökum reglubundið upp umræður um félagsgjöld í blaðinu okkar og nauðsyn þess að félagsmenn greiði þau í tíma. Stjórn AO og fleiri aðilar starfa sem sjálfboðaliðar fyrir félagið og í nefndum sem félagið á fulltrúa í og láta þar ekki sitt eftir liggja. Ávöxtur þessarar vinnu er aðgangur félagsmanna að þjónustu er snýr að hagsmunagæslu þeirra, samtal og aðstoð frá starfsmanni á skrifstofu og sérstök aðstoð frá formanni eða stjórn. Fréttablað tvisvar á ári, rafrænir upplýsingapóstar, fagleg fræðsla og jólaball fyrir börn með ofnæmi og systkini þeirra.

 

vilt fá greiðslu seðil

 

Margir eru vanir að nota heimabanka og greiða þar ýmsa reikninga og fylgir AO nútímanum í því að félagsgjöldin má greiða í heimabanka. Hins vegar eru einhverjir sem nota ekki heimabanka og þeir valkostir sem standa þeim til boða eru að fá sendan greiðsluseðil, að greiða með greiðslukorti og að setja félagsgjöldin í beingreiðslur en síðastnefndu þjónustuna þarf að óska eftir í gegnum sinn banka. Óska má eftir greiðsluseðli með því að senda tölvupóst á This email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it. eða að hringja í 560-4814 á mánudögum milli 9 og 15. 

Takk

 

Hver félagsmaður skiptir okkur máli en einnig hver greiðsla því félagsgjöldin eru grundvöllur þess að félagið nái að halda áfram að vaxa og gæta hagsmuna félagsmanna sinna.

 


Stjórn Astma- og ofnæmisfélags Íslands


Stjórn Astma- og ofnæmisfélags Íslands óskar félagsmönnum gleðilegs sumars

Margir telja að félagsskapur eins og Astma- og ofnæmisfélag Íslands hafi aukið vægi og njóti meiri vinsælda en áður. Mannauður okkar eykst og einstaklingar hafa samband með fyrirspurnir, ábendingar og einnig til að bjóða fram krafta sína til að bæta hag annarra. Einnig hafa einstaklingar samband til að fá stuðning í hagsmunabaráttu vegna astma og ofnæmis en almennt er tilfinningin sú að astmi og ofnæmi sé að aukast og taka fulltrúar félaganna á hinum Norðurlöndunum í sama streng. Hvort sem okkur líkar betur eða verr þá skipta sjúklingasamtök meira máli þegar innviðir heilbrigðiskerfisins eru ekki nægjanlega sterkir, ekki að við ætlum að setja okkur í spor meðferðaraðila heldur erum við stuðningur og styrkur og þar skiptum við sannarlega máli.

 

straetomynd1Stjórn AO lætur ekki sitt eftir liggja í skoðanaskiptum um meinta ætlun Strætó bs að bjóða farþegum sínum að ferðast með gæludýr sín með sér. Rétt er að taka fram að andstaða stjórnarinnar snýr ekki að blindrahundum, það dettur okkur ekki í hug, enda væri slíkt brot á mannréttindum blindra og sjónskertra. Stjórn AO, og þeir sem stríða við astma og ofnæmi vekja hins vegar athygli á því að fjöldi fólks, þar með talin börn, eru með ofnæmi fyrir dýrum og því væri gengið á mannréttindi og öryggi þeirra með því að leyfa gæludýr í almenningsvögnum. Einnig má líta á þætti eins og hræðslu fólks við hunda og sá óþrifnaður sem getur hlotist á dæmigerðum íslenskum slyddu dögum.

Ofnæmisvaldar í farþegaflugi, þar sem hnetur eru nærtækasta dæmið, hafa verið efni bréfaskrifta af hálfu félagsins þar sem vekja hefur þurft athygli á því að bættar verklagsreglur flugfélaga séu nauðsynlegar til varnar því að dauðsfall hljótist af.

 

Það er margt sem stjórn AO hefur á prjónunum. Félagið hefur eflst í sínu norræna samstarfi og mun á haustdögum vera þátttakandi í samnorrænni viku þar sem vakin er athygli á því að fjöldi fólks þolir illa lykt og ilm af ýmiskonar ilm- og þrifaefnum svo og ilmvötnum og rakspírum, þetta vandamál er ekki á undanhaldi. Einnig er í gangi annað öflugt samnorrænt verkefni er snýr að sérstökum merkingum á vörum sem innihalda ekki ofnæmisvaldandi efni. Þar er hinn gríðarstóri norræni markaður undir. Námskeið um eldun ofnæmisfæðis er á döfinni á haustmánuðum og fleiri fræðslubæklingar munu líta dags ljós. Allt þetta til að bæta hag þeirra sem nú þegar stríða við astma og ofnæmi en einnig til að reyna að stemma stigu við þeirri þróun að það fjölgi enn frekar í hópnum.

 sumarblom

Stjórn Astma- og ofnæmisfélags Íslands óskar félagsmönnum gleðilegs sumars.

 

Fríða Rún Þórðardóttir

Formaður AO


Styrkir afhentir úr Styrktarsjóði AO 2015

Aðalfundur Astma- og ofnæmisfélags Íslands var haldinn þann 29. apríl síðastliðinn. Auk hefðbundinna aðalfundarstarfa voru afhentir styrkir úr Styrktarsjóði AO. Að þessu sinni hlutu styrki þær Anna Kristín Þórhallsdóttir, sérnámslæknir í heimilislækningum á Lungna- og ofnæmisdeild LSH og Monique Van Oosten sjúkraþjálfari á Reykjalundi og starfsmaður í heimaþjónustu en þær hlutu báðar styrk vegna rannsókna sinna er tengjast astma og ofnæmi.


Rannsókn Önnu Kristínar ber heitið „Níturoxíð í útöndunarlofti hjá miðaldra íslensku slembiúrtaki“ og er hluti af Evrópukönnuninni Lungu og Heilsa III: Ofnæmi á Íslandi. Evrópukönnunin Lungu og Heilsa er fjölþjóðleg rannsókn sem hófst árið 1990 og nær til 3600 einstaklinga á hverjum rannsóknarstað, en þátttakendur voru valdir handahófskennt þá á aldrinum 20-44 ára og svöruðu þeir ítarlegum spurningalista.

WP 20150429 034

Monique hefur undanfarin ár rannsakað nýlega öndunartækni, svokallaða Buteyko-aðferð og jafnframt áhrif hvíldaröndunar á einkenni og stjórn astmasjúkdómsins. Buteyko-

aðferðin hefur gefist gríðarlega vel gegn astma og öðrum öndunarsjúkdómum og hentar sérstaklega vel fólki með langvinnar berkjabólgur, astma, lungnaþembu, ofnæmi, kæfisvefn, síþreytu og 

háþrýsting. Aðferð Buteykos kemur mörgum spánskt fyrir sjónir í fyrstu en aðferðin byggir að miklu leyti á því að hægja á önduninni. Nánar um rannsóknirnar hér

 

AO er stolt af því að vera styrktaraðili slíkra verkefna og óskar styrkhöfum góðs gengis við rannsóknir sínar.

 

 

Framhaldsaðalfund AO þann 12. maí nk. kl. 17:15

halloÁgæti félagi

Við minnum á framhaldsaðalfund AO þann 12. maí nk. kl. 17:15 í Síðumúla 6

Vonumst til að sjá ykkur sem flest 

Með kveðju 

Stjórn AO


Flokkar

Póstlisti AO

Fáðu sendar tilkynningar og fréttir af starfi AO