Tilkynningar

DÁSAMLEGUR MATUR SEM ALLIR GETA NOTIÐ Hin breska Alice Sherwood er...
Opnunartími skrifstofu
Gerast félagi
ao vidbragsaaetlun hnappur

Skráning á póstlista

Minningarkort
Tímarit
Fræðslumyndbönd
Medic Alert
SÍBS

 

 

 ht logo big neg1

Brennisteinsvetnismengun

Hellisheidarvirkjun

Brennisteinsvetnismengun er ekki til umræðu á hverjum degi. Samt telja margir sérfræðingar að losun brennisteinsvetnis út í andrúmsloftið og neikvæð áhrif þess á loftgæði sé eitt stærsta umhverfisvandamál sem höfuðborgarsvæðið glímir við.


Á síðastliðnum áratug hafa Hellisheiðar- og Nesjavallavirkjun, virkjanir Orkuveitu Reykjavíkur sem standa í útjaðri höfuðborgarsvæðisins, samtals losað um 198 þúsund tonn af brennisteinsvetni út í  andrúmsloftið.
Hagsmunaaðila deilir á um langtímaáhrif af brennisteinsvetnismengun. Sigurður Ingi Jóhannsson umhverfisráðherra sagði til að mynda á Alþingi í apríl að lítið væri vitað um áhrif brennisteins vetnis á heilsufar.

Í Kjarnanum er góð grein um áhrif brennisteinsvetnismengunar og má sjá greinina í heild sinni hér.

 

 

Ráðstefna Lindarinnar í Keflavík 23-25 maí

lindin mynd

Dagana 23-25 maí n.k. verður haldin ráðstefna í Kirkjulundi í Keflavík og er það Lindin, félag ummeðfædda ónæmisgalla sem stendur fyrir ráðstefnunni.

Lesa meira...

Hvað er markþjálfun

Coaching-300x238

Fræðsluerindi um markþjálfun verður haldið mánudaginn 5. maí 2014 kl 17:00 á annari hæð SÍBS hússins Síðumúla 6 í Reykjavík

Erindið mun svara eftirfarandi spurningum:

 Hvað er markþjálfun og hvernig leysir markþjálfi úr læðingi innbyggða möguleika einstaklings eða hóps?

Fyrir hvern - hverja er markþjálfun og hvaða gagn er af henni?

Tegundir markþjálfunar og hvaðan kemur markþjálfun?

Er hægt að markþjálfa alla?

Hvernig vel ég mér markþjálfa og hvað er góður markþjálfi? Hvar finnég markþjálfa?


Fyrlesari:
Auðbjörg Reyisdóttir, markþjálfi og hjúkrunarfræðingur

Fræðsluerindið er í boði Félagsráðs SÍBS -ókeypis - og opið öllum meðan húsrúm leyfir.


Nýtt afmælisblað Astma- og ofnæmisfélags Íslands

Forsida AOblad

 

Í ár fagnaði Astma- og ofnæmisfélagið 40 ára afmæli og var af því tilefni gefið út veglegt afmælisblað. 

Blaðið er tímamóta framtak þar sem helsta vinnan er á höndum ritstjórnar, eingöngu skipuð stjórnarmönnum.

Í blaðinu má meðal annars finna ágrip á 40 ára sögu félagsins, grein móður ofnæmisveiks barns, viðtal við hárgreiðslukonu sem vinnur aðeins með "grænar" hársnyrtivörur, grein um krossofnæmi og margt fleira upplýsandi og skemmtilegt. 

Astma- og ofnæmisfélag Íslands gefur út tvö blöð  á ári og eru allar ábendingar um spennandi efni vel þegnar.

Sjá allt blaðið hér

Bæklingur um frjóofnæmi

frjoofnæmisbæklingur-forsida-GSK

 

 

Gefin hefur verið út bæklingur um frjóofnæmi og er það samvinnuverkefni Astma og Ofæmisfélags Íslands og Glaxo Smith Kline.
Sigurveig Þ. Sigurðardóttir og Björn Árdal sem eru bæði barnalæknar og sérfræðingar í ofnæmis- og ónæmissjúkdómum á Landspítalanum eru höfundar bæklingsins.

Bæklingnum verður dreift á heilsugæslustöðvar og í læknastofur auk þess sem hægt verður að nálgast hann á skrifstofu Astma- og Ofnæmisfélags Íslands í Síðumúla 6 www.ao.is

Frjóofnæmi er mjög algengt vandamál og hefur farið vaxandi. Fyrir 20 árum voru um
8,5 – 12% fullorðinna Íslendinga með næmi fyrir grasfrjói og 3 – 6% fyrir birkifrjói.

Hér má sjá bæklinginn í heild sinni.


Lesa meira...

Aðalfundur Astma- og ofnæmisfélags Íslands

 

aologoAðalfundur AO verður haldinn miðvikudaginn 30. apríl 2014 í SÍBS húsinu, Síðumúla 6, kl. 17.15.
 
Dagskrá: Venjuleg aðalfundarstörf .
 
Stjórn Astma- og ofnæmisfélags Íslands.
 

Flokkar

Póstlisti AO

Fáðu sendar tilkynningar og fréttir af starfi AO