Tilkynningar

DÁSAMLEGUR MATUR SEM ALLIR GETA NOTIÐ Hin breska Alice Sherwood er...
Opnunartími skrifstofu
Gerast félagi
ao vidbragsaaetlun hnappur

Skráning á póstlista

Minningarkort
Tímarit
Fræðslumyndbönd
Medic Alert
SÍBS

 

 

 ht logo big neg1

Bráðaofnæmiskast - Hvað skal gera?

bráðaofnæmi-epipennanafylaxie-epipen

 

ASTMA- OG OFNÆMISFÉLAG ÍSLANDS heldur fræðslufund þriðjudaginn 5. apríl n.k. kl. 17.30 að Síðumúla 6 í húsakynnum SÍBS (2 hæð).

Gunnar Jónasson, barnalæknir  og sérfræðingur í ofnæmissjúkdómum barna fjallar um bráðaofnæmiskast og svarar spurningum fundarmanna.

 

Fundurinn er opinn öllum þeim sem áhuga hafa á astma og ofnæmi

 Stjórnin.

Sjá nánari upplýsingar á www.ao.is

Aðalfundur Astma- og ofnæmisfélags Íslands 2016

halloAðalfundur Astma- og ofnæmisfélags Íslands verður haldinn þriðjudaginn 26. apríl 2016, í húsakynnum SÍBS Síðumúla 6, 2. hæð Kl 17.15.

Dagskrá:

Venjulega aðalfundarstörf.

           

Stjórn Astma- og ofnæmisfélags Íslands

Fæðuofnæmisnámskeið á Egilsstöðum á föstudaginn 11.mars. Enn eru nokkur laus pláss

HVERNIG Á AÐ MATREIÐA OFNÆMISFÆÐI Á ÖRUGGAN HÁTT?

Brunch MGD

 

Námskeið um eldun ofnæmisfæðis á vegum Astma- og ofnæmisfélags Íslands (AO).

 

Markmiðin

Meginmarkmiðið með námskeiðinu er að bjóða upp á faglega fræðslu um fæðuofnæmi, alvarleika þess og hvernig tryggja megi góða og holla næringu. Það getur verið flókið að tryggja öruggt fæði og umhverfi fyrir einstakling með fæðuofnæmi. Ljóst er að næringarefni geta orðið af skornum skammti þegar fæðuofnæmi er til staðar og felst fræðslan m.a. í því hvaða fæðutegundir geta komið í staðinn fyrir mjöl, korn, mjólk egg, fisk, hnetur o.fl. til að fullnægja orku- og næringarlegum þörfum og skapa fjölbreytni í fæðu barna.

 

Markhópur

Matráðir í eldhúsum í leik-, grunn- og framhaldsskólum, á sjúkrahúsum og öldrunarstofnunum. Einnig heimilisfræðikennarar, starfsmenn og stjórnendur í skólum.

 

Dagskrá

Föstudagur 11. mars:       Bóklegt 12:30 – 14:30, hlé, Verklegt 15:00 – 19:00

 

Lesa meira...

Leitum að einstaklingi sem er tilbúin(n) að koma fram í mynd

Ágæti félagsreykingarmaður

Astma- og ofnæmisfélag Íslands er þátttakandi í sameiginlegu verkefni nokkurra sjúklingasamtaka og Krabbameinsfélags Íslands við gerð fræðslumyndar um skaðsemi reykinga. Félagið er að leita að einstaklingi sem er tilbúin(n) að koma fram í myndinni og segja frá sinni reynslu er snýr að reykingum og astma.

Ef þú hefur áhuga eða vilt fá nánari upplýsingar vinsamlegast hafðu samband Pál Kristinn Pálsson kvikmyndagerðarmann í síma 690-8288 eða með tölvupósti á This email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it. fyrir föstudaginn 18. mars nk.

Farið verður með allar fyrirspurnir sem trúnaðarmál

Fyrir hönd AO
Fríða Rún Þórðardóttir

Formaður

HVERNIG Á AÐ MATREIÐA OFNÆMISFÆÐI Á ÖRUGGAN HÁTT?

 

Námskeið í Menntaskólanum í Kópavogi

Námskeið um eldun ofnæmisfæðis á vegum Astma- og ofnæmisfélags Íslands (AO) 12. og 13. apríl 2016.

Markmiðin

boern-mad

Meginmarkmiðið með námskeiðinu er að bjóða upp á faglega fræðslu um fæðuofnæmi, alvarleika þess og hvernig tryggja megi góða og holla næringu. Það getur verið flókið að tryggja öruggt fæði og umhverfi fyrir einstakling með fæðuofnæmi. Ljóst er að næringarefni geta orðið af skornum skammti þegar fæðuofnæmi er til staðar og felst fræðslan m.a. í því hvaða fæðutegundir geta komið í staðinn fyrir mjöl, korn, mjólk egg, fisk, hnetur o.fl. til að fullnægja orku- og næringarlegum þörfum og skapa fjölbreytni í fæðu barna.

Lesa meira...

Málþing: Nýjar reglur um velferð gæludýra


kat-hundMatvælastofnun og atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytið halda opið málþing um velferð gæludýra fimmtudaginn, 3. mars kl. 13:00 – 16:00 í fyrirlestrarsal ráðuneytisins að Skúlagötu 4 (1.h.) í Reykjavík. Á málþinginu gefst gæludýraeigendum og öðrum áhugasömum kostur á að fræðast um kröfur og helstu nýmæli nýrrar reglugerðar um velferð gæludýra, með gagnvirkum umræðum í lokin.

Lesa meira...

Flokkar

Póstlisti AO

Fáðu sendar tilkynningar og fréttir af starfi AO