Tilkynningar
Auglýsing um Styrkumsóknir 2024
Astma og Ofnæmisfélag Íslands auglýsir eftir umsóknum um styrki í Styrktarsjóð félagsins sem veitt verður úr í samræmi við tilgang sjóðsins sem er að: * stuðla að aukinni þekkingu á astma- og ofnæmissjúkdómum. * styrkja lækna og aðra sem leita sér fagþekkingar á ofangreindum sjúkdómum og kunnáttu í meðferð þeirra með framhaldsnámi eða rannsóknum á þessu sviði. Umsóknin þarf að innihalda upplýsingar um umsækjandann, í hverju verkefnið felst, áætlaðan kostnað, dagsetningu og stutta greinargerð um gildi verkefnissins fyrir Astma- og ofnæmissjúka á Íslandi. Umsóknir skulu berast á rafrænu formi fyrir miðnætti þann 24. mars nk. á netfangið This email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it. og This email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it. með fyrirsögninni „Styrkumsókn 2024“ Styrkirnir verða afhenti á 50 ára afmæli félagsins þann 16. apríl nk. Nánari upplýsingar veitir Fríða Rún Þórðardóttir, formaður Astma og ofnæmisfélags Íslands í síma 898-8798 eða á netfangið This email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it. |
Póstlisti AO
Fáðu sendar tilkynningar og fréttir af starfi AO