Tilkynningar

DÁSAMLEGUR MATUR SEM ALLIR GETA NOTIÐ Hin breska Alice Sherwood er...
Opnunartími skrifstofu
Gerast félagi
ao vidbragsaaetlun hnappur

Skráning á póstlista

Minningarkort
Tímarit
Fræðslumyndbönd
Medic Alert
SÍBS

 

 

 ht logo big neg1
05. Sep 2005

Námskeið SÍBS

Námskeið fyrir félagsmenn SÍBS veturinn 2005-2006

Námskeiðin eru haldin í samstarfi við endurmenntunarmiðstöð FÁ/Framvegis.

Hóflegt verð, nánar upplýsingar við skráningu.

 Skráning hefst 12-24.sept. nk. í S. 552 21 50

Tölvunotkun I

(20 kennslustundir)

Námskeiðið hentar þeim vel sem eru byrja að nota tölvun.
Farið er í hvernig tölvan virkar og helstu atriði. Einnig verða vefsíður skoðaðar og tölvupóstur prófaður eftir atvikum.

Tími: 17. okt-2.nóv 2005. Þrisvar sinnum í viku í tvo tíma í senn, alls 8 skipti.
Leiðbeinandi: Ólafur Þórisson

Tölvunotkun II-fyrri hluti

(20 kennslustundir)

Tölvupóstur og ritvinnsla. Á námskeiðinu verður annars vegar aðstoðað við ritvinnslu, vistun og flokkun skjala og helstu skipanir. Hinsvegar verður leiðbeint um að halda utan um tölvupóst, geyma og flokka upplýsingar um tengiliði, halda dagbók, auðvelda eftirlit með eigin verkefnum, skrifa minnismiða og geyma þá og flokka.

Tími: 14-30. nóv 2005. Þrisvar sinnum í viku í tvo tíma í senn, alls 8 skipti.
Leiðbeinandi: Ólafur Þórisson

Póstlisti AO

Fáðu sendar tilkynningar og fréttir af starfi AO