Tilkynningar
Námskeið 13. og 28. nóvember á Akureyri
HVERNIG Á AÐ MATREIÐA OFNÆMISFÆÐI Á ÖRUGGAN HÁTT?Astma- og ofnæmisfélag Íslands (AO) heldur sitt vinsæla „námskeið um eldun ofnæmisfæðis“ þriðjudaginn 13. nóvember og miðvikudaginn 28. nóvember í Giljaskóla á Akureyri. Bóklegi hlutinn verður haldinn þriðjudaginn 13. nóvember kl. 13:30 til 16:45 og verklegi hlutinn miðvikudaginn 28. nóvember kl. 13:30 til 17:00. Námskeiðsgjald er 23.000 kr og er hráefnisgjald og hressing innifalin Markmiðin Meginmarkmiðið með námskeiðinu er að bjóða upp á faglega fræðslu um fæðuofnæmi, alvarleika þess og hvernig tryggja megi góða og holla næringu. Það getur verið flókið að tryggja öruggt fæði og umhverfi fyrir einstakling með fæðuofnæmi. Ljóst er að næringarefni geta orðið af skornum skammti þegar fæðuofnæmi er til staðar og felst fræðslan m.a. í því að fara yfir hvaða fæðutegundir geta komið í staðinn fyrir mjöl, korn, mjólk, egg, fisk, hnetur o.fl. til að fullnægja orku- og næringarlegum þörfum og skapa fjölbreytni í fæðu barna og fullorðinna. Verklegi hlutinn felur í sér eldun og bakstur ýmissa rétta og útfærsla uppskrifta á mismunandi máta eftir því hvaða ofnæmi er um að ræða.
Markhópur Matreiðslumenn í eldhúsum, matráðir í eldhúsum í leik- og grunnskólum, heimilisfræðikennarar, starfsmenn, kennarar og stjórnendur í skólum, foreldrar og forráðamenn barna og ungmenna með fæðuofnæmi, starfsfólk veitingastaða og hótela, fólk með fæðuofnæmi og aðrir sem áhuga hafa á málefninu.
Bóklegt 2 ½ - 3 klst með stuttu kaffihléi. *Tryggjum næga orku og góða næringu með hollum, góðum og öruggum mat. Fríða Rún Þórðardóttir * Er hægt að tryggja öryggi þeirra sem eru með fæðuofnæmi? Hver er okkar réttur? Selma Árnadóttir Verklegt 3 ½ - 4 klst *Eldum góðan og næringarríkan mat fyrir alla, líka þá sem eru með fæðuofnæmi og óþol. Umræður og smakk Guðný Jónsdóttir Kennarar Fríða Rún Þórðardóttir, næringarfræðingur og næringarráðgjafi Eldhúsi Landspítala, formaður AO. Guðný Jónsdóttir, Næringarrekstrarfræðingur og kennari matartæknabraut MK Selma Árnadóttir, varaformaður AO, ofnæmisráðgjafi og móðir ofnæmisbarns.
Annað Sýndar verða ýmsar sérfæðisvörur auk þess sem matreiðslubókin Kræsingar verða til sölu.
Skráning Skráning fer fram hér (https://goo.gl/forms/iHy9kVGszqBJvh512) eða með því að senda póst á This email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it. með upplýsingum um: * fullt nafn * kennitölu * starfsstöð og * Greiðandi (nafn, kennitala og netfang) Skráning og verð Námskeiðsgjald er 23.000 kr og er hráefnisgjald og hressing innifalin. Greiða þarf 8.000 kr. staðfestingargjald við skráningu fyrir 8/11-18: Bankareikningur: 0113-05-570194 Kennitala: 590474-0109 Senda kvittun á: This email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it. Vinsamlega greiðið aðeins eitt gjald í hverri færslu þannig að hægt sé að sjá fyrir hvern er verið að greiða eða sendið póst á This email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it. og tilgreinið nöfn þess sem greitt er fyrir.
Skráningarfrestur er til og með 8/11 2018
Nánari upplýsingar veitir:
Fríða Rún Þórðardóttir
Formaður AO
This email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it. Sími 898-8798
Astma- og ofnæmisfélag Íslands
Síðumúla 6, 108 Reykjavík
S. 560-4814 (mánudögum kl.9-15)
Netfang:This email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it.
Vef:www.ao.is |
Póstlisti AO
Fáðu sendar tilkynningar og fréttir af starfi AO