Tilkynningar

DÁSAMLEGUR MATUR SEM ALLIR GETA NOTIÐ Hin breska Alice Sherwood er...
Opnunartími skrifstofu
Gerast félagi
ao vidbragsaaetlun hnappur

Skráning á póstlista

Minningarkort
Tímarit
Fræðslumyndbönd
Medic Alert
SÍBS

 

 

 ht logo big neg1
05. Feb 2018

Innköllun á glútenlausri vöru „Natural corn chips“ vegna þess að hún inniheldur glúten.

amaizin mynd corn chipsFréttatilkynning fra matvælaéftirliti Héilbrigðiséftirlits Réykjavíkur, nr. 3/2018.

Efni: Innköllun á glútenlausri vöru „Natural corn chips“ vegna þess að hún inniheldur glúten.
Heilsa ehf. hefur, í samráði við Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur, ákveðið að innkalla af markaði vöru vegna þess að hún er merkt glútenlaus en inniheldur glúten.

Eftirfarandi upplýsingar auðkenna vörurnar sem innköllunin einskorðast við:
Vöruheiti: Amaizin Natural corn chips
Strikanúmer: 8716099102007
Nettómagn: 150 g
Lotunúmer: 37331
Best fyrir: 27.07.18
Framleiðandi: Amaizin
Dreifing: Nettó Granda, Nettó Selfossi, Fjarðarkaup ehf, Heilsuhúsinu Laugavegi og Hlíðarkaup.
Fullyrt er á umbúðum vörunnar að hún sé glútenlaus (e. gluten free) en til að mega nota þessa fullyrðingu við markaðssetningu á matvælum mega þau ekki innihalda meira en 20 mg/kg af glúteni. Við innra eftirlit framleiðanda hefur komið í ljós að „Amaizin Natural corn chips“ inniheldur meira en 20 mg/kg af glúteni og er hún því ekki örugg fyrir einstaklinga sem eru með ofnæmi- eða óþol fyrir korni sem inniheldur glúten.
Tekið skal fram að varan er skaðlaus fyrir þá sem ekki eru viðkvæmir fyrir glúteni. Þeir neytendur sem eiga umrædda vöru og eru viðkvæmir fyrir glúteni eru beðnir um að neyta hennar ekki og farga eða hafa samband við Heilsu ehf., Bæjarflöt 1-3, í síma 517 0670.

Póstlisti AO

Fáðu sendar tilkynningar og fréttir af starfi AO