06. Maí 2014
- Details

Dagana 23-25 maí n.k. verður haldin ráðstefna í Kirkjulundi í Keflavík og er það Lindin, félag ummeðfædda ónæmisgalla sem stendur fyrir ráðstefnunni.
Meðfæddur mótefnaskortur s.s. CVID er því miður of oft vangreindur og afleiðingar langvarandi veikinda geta haft þungbær líkamleg og andleg áhrif á sjúklinga.
Um er að ræða þriggja daga ráðstefnu með norrænum fyrirlesurum sem skarað hafa framúr á þessu sviði.
Ráðstefnugjald sem innheldur fyrirlestra, hádegisverð og kaffiveitingar er Kr. 25.000
Við skráningu verður hægt að fá nánari upplýsingar um greiðslufyrirkomulag. Síðasti skráningardagur er 20. maí.
Hér má sjá dagskránna í heild sinni.
Fh Lindar félag um meðfædda ónæmisgalla
Guðlaug María Bjarnadóttir S: 698 8806
Súsanna Antonsdóttir S: 859 4279